Samstarf

Afsláttardagar ofan á hagstætt verð Lyfjavers

Lyfjaver
Hákon Steinsson framkvæmdastjóri Lyfjavers.
Hákon Steinsson framkvæmdastjóri Lyfjavers. Lyfjaver

Með tilkomu Netapóteks Lyfjavers hefur aðgengi landsmanna stóraukist að fjölbreyttu vöruúrvali á hagstæðu verði.

Afsláttardagar standa nú yfir í Netapóteki Lyfjavers. 20 % afsláttur fæst af almennum vörum og 10% af lausasölulyfjum. Netapótek Lyfjavers hefur slegið í gegn eftir að það fór í loftið síðasta haust en með opnun Netapóteksins kom Lyfjaver til móts við viðskiptavini um allt land með frábært vöruúrval, hagstætt verð og betri yfirsýn yfir lyfseðla.

Rafrænt yfirlit lyfseðla

Með því að skrá sig inn í Lyfjagáttina í Netapóteki Lyfjavers með rafrænum skilríkjum fá viðskiptavinir yfirlit yfir eigin lyfseðla og geta einnig nálgast lyfseðla barna sinna 15 ára og yngri. Hægt er að sjá nákvæmt lyfjaverð með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands ásamt afslætti Lyfjavers. Þannig geta viðskiptavinir gert verðsamanburð á lyfjum, lausasölulyfjum og öðrum vörum milli apóteka, skoðað þau samheitalyf sem í boði eru, skoðað verðmun á milli samheitalyfja og þrepastöðu hjá Sjúkratryggingum Íslands. Á einum stað er því hægt að leysa út lyfseðla og kaupa öll lausasölulyf auk fjölda annarra vara, allt í einni körfu.

Með lágvöruverðsapótekið í símanum eða tölvunni eru viðskiptavinir með auka útibú Lyfjavers heima hjá sér. Kaupferlið er einfalt og aðgengilegt.

Apótekið í vasanum og lyfin send heim

Með lágvöruverðsapótekið í símanum eða tölvunni eru viðskiptavinir með auka útibú Lyfjavers heima hjá sér og geta nálgast nauðsynleg lyf hvar sem þeir eru staddir á landinu. Frí heimsending er um land allt á pöntunum frá Netapóteki Lyfjavers með tvo eða fleiri lyfseðla eða ef heildarupphæð pöntunar er yfir 9.900 kr. Pantanir eru afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu allt frá Kjalarnesi til Vallahverfis í Hafnarfirði. Pósturinn sækir pantanir síðdegis í Lyfjaver fyrir landsbyggðina og er alla jafna búinn að afhenda pantanir næsta virka dag.

Panta fyrirfram og losna við bið

Með því að ganga frá pöntun fyrir heimsókn í Lyfjaver á Suðurlandsbrautinni geta viðskiptavinir flýtt fyrir sér og losnað við biðina meðan pöntunin er tekin til. Þegar pöntunin er afgreidd fær viðskiptavinur einfaldlega sent SMS skilaboð og getur þá mætt á staðinn og sótt. Yfirleitt er pöntun tilbúin eftir 15-30 mín en það fer eftir álagi.

Hagstætt verð

Með tilkomu Netapóteks Lyfjavers hefur aðgengi landsmanna stóraukist að fjölbreyttu vöruúrvali á hagstæðu verði. Álagningu er stillt verulega í hóf í Lyfjaveri og jafnast oft á við afsláttarverð annarsstaðar. Nú er því lag að nýta sér enn betra verð á afsláttardögum í Netapóteki Lyfjavers og gera góð kaup. Afsláttardagar standa frá 9. til 12. september.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×