Heimsmarkmiðin

Hamfarahlýnun ógnar milljarði barna

Heimsljós
Ljósmynd © UNICEF/UN0436094/Prinsloo

Loftmengun, hitabylgjur, vatnsskortur, gróðureldar, flóð og ofsaveður setja börn um allan heim í mikla hættu.

Um það bil einn milljarður barna - næstum helmingur allra barna í heiminum - er mjög berskjaldaður vegna hamfarahlýnunar sem ógnar heilsu þeirra, menntun og öryggi. Loftslagsbreytingar grafa undan réttindum barna á hverjum einasta degi. Að mati UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, verður nánast hvert einasta barn nú fyrir að minnsta kosti einu áfalli af völdum hamfarahlýnunar. Loftmengun, hitabylgjur, vatnsskortur, gróðureldar, flóð og ofsaveður setja börn um allan heim í mikla hættu.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, ‘The Climate Crisis Is a Child Rights Crisis: Introducing the Children’s Climate Risk Index’. Þar kynnir UNICEF í fyrsta sinn sérstakan barnamiðaðan loftslagsáhættustuðull (Child-focused climate risk index) sem er heildræn greining á þeim áhættum sem steðja að börnum vegna hamfarahlýnunar, unnin út frá sjónarhóli barnsins.

„Í fyrsta sinn höfum við heildarmynd af því hvar og hvernig börn eru viðkvæm fyrir hamfarahlýnun og sú mynd er skelfileg,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF og kallar eftir því að ríkisstjórnir og fyrirtæki heimsins grípi til róttækra aðgerða og minnki tafarlaust losun gróðurhúsalofttegunda. Aðgerðarleysi sé ekki í boði.

Í skýrslunni er löndum heimsins raðað eftir því hvar mesta hættan er á því að börn verði fyrir loftslags- og umhverfisáföllum og áhættan borin saman við aðgengi þeirra er að nauðsynlegri þjónustu.

Í efstu sætum listans eru 33 lönd sem flokkast undir „mjög mikla hættu“ og þar býr um einn milljarður barna. Þetta eru til að mynda börn í Miðafríkulýðveldinu, Tsjad, Afganistan, Bangladess, Jemen, Haítí og Nígeríu. Þessi börn standa frammi fyrir banvænni blöndu af margvíslegum áföllum og miklu varnarleysi vegna skorts á hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, heilsugæslu og menntun. „Niðurstöður skýrslunnar endurspegla fjölda þeirra barna sem eru í hættu í dag en sú tala mun að öllum líkindum hækka eftir því sem áhrif hamfarahlýnunar verða meiri. Ísland er í neðsta sæti listans þar sem áhættan er talin lítil og almennt gott aðgengi að nauðsynlegri þjónustu,“ segir í frétt frá UNICEF.

Skýrsluna í heild má lesa hér og hægt er að skoða tölfræðina hér.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×