Innlent

51 greindist innanlands, minnihluti í sóttkví

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá sýnatöku vegna kórónuveirunnar við Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Frá sýnatöku vegna kórónuveirunnar við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Síðasta sólarhringinn greindist 51 smitaður af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru tuttugu í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 31 var utan sóttkvíar.

Samkvæmt nýuppfærðum tölum á Covid.is, upplýsingavef almannavarna og landlæknir, voru 34 þeirra sem greindust smitaðir fullbólusettir, fjórir höfðu fengið fyrri skammt en 28 voru óbólusettir.

Fimmtán manns eru nú á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu. Karlmaður á áttræðisaldri lést af völdum Covid-19 á Landspítalanum í gær og eru nú 33 látnir í faraldrinum.

Í sóttkví eru nú 1.817 manns og 844 í einangrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×