Sport

Dagskráin í dag: Golf, tölvuleikir og sex stiga toppslagur í Pepsi Max deild karla

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valsarar heimsækja Víkinga í toppslag Pepsi Max deildar karla í kvöld.
Valsarar heimsækja Víkinga í toppslag Pepsi Max deildar karla í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Alls verður boðið upp á sex beinar útsendingar á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag. Þar ber hæst að nefna toppslag Valsara og Víkinga í Pepsi Max deild karla.

Dagurinn byrjar klukkan 11:00 á :Stöð 2 Golf þar sem að lokadagur AIG Women's Open 2021 fer fram. Á sama tíma á Stöð 2 Sport 4 verður sýnt frá D+D Real Czech Masters, sem er hluti af Evróputúrnum.

Þá átti að sýna frá lokadegi The Northern Trust-mótsins í dag, en honum hefur verið frestað vegna veðurs.

Klukkan 18:45 hefst svo upphitun fyrir viðureign Víkings og Vals á Stöð 2 Sport. Liðin sitja í fyrsta og öðru sæti deildarinnar, en aðeins þrjú stig skila liðin að. Það er því mikið í húfi þegar skipt verður niður á völl klukkan 19:00.

Að leik loknum er svo Pepsi Max Stúkan á dagskrá, þar sem að sérfræðingar Stúkunnar fara yfir allt það helsta úr líðandi umferð.

Klukkan 21:00 er Sandkassinn á dagskrá á Stöð 2 eSport þar sem Benni og félagar mæta til leiks og spila allskyns leiki í bland við að prófa sig áfram með allskyns tækni og leiki.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar sem framundan eru næstu daga má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×