Viðskipti erlent

Guð­faðir sudoku-þrautanna er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Maki Kaji þróaði sudoku-þrautirnar á áttunda áratugnum.
Maki Kaji þróaði sudoku-þrautirnar á áttunda áratugnum. AP/Getty

Japaninn Maki Kaji, sem þekktur var sem „guðfaðir“ sudoku-þrautanna, er látinn. Hann lést í morgun af völdum krabbameins, 69 ára að aldri.

Maki Kaji var sjálfur mikill áhugamaður um þrautir og heilabrot og hóf á sínum tíma störf í prentsmiðju eftir að hafa hætt í háskóla. Síðar stofnaði hann og varð útgefandi tímarits sem helgað var þessu helsta áhugamáli hans.

Hann þróaði það sem átti síðar eftir að kallast sudoku á áttunda áratugnum, en orðið sjálft er stytting á japanska orðasambandinu að „allar tölur verða að vera stakar“.

Í gegnum árin hafa milljónir manna um allan heim varið óteljandi klukkustundum við þessa heilaleikfimi Kajis. Síðustu ár hafði Kaji svo þróað ólíkar tegundir af þrautum með aðstoð lesenda að því er segir í frétt Guardian.

Lesa má um sudoku-þrautirnar á Vísindavef Háskóla Íslands, en heimsmeistaramót hafa verið haldin í sudoku allt frá árinu 2006. Þar kemur meðal annars fram að fjöldi mögulegra sudoku-mynstra á 9x9 borði eru 6.670.903.752.021.072.936.960 talsins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×