Viðskipti innlent

Play stund­vísasta flug­fé­lagið á Kefla­víkur­flug­velli

Eiður Þór Árnason skrifar
IMG_8638 (1)
Vísir/Sigurjón

Flugfélagið Play flutti 9.899 farþega í júlí og var sætanýting 41,7 prósent. Nýtingin er sögð vera í takt við væntingar stjórnenda þennan fyrsta mánuð félagsins í fullum rekstri.

Eftirspurn eftir flugsætum til og frá sumarleyfisstöðum Play var vel umfram væntingar. Ný bylgja kórónuveirufaraldursins er sögð hafa haft neikvæð áhrif á eftirspurn meðal Íslendinga en ekki erlendra farþega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu til Kauphallar og fjölmiðla en þar segir að Play hafi verið stundvísasta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli í júlí með 96,2 prósent flugferða á réttum tíma.

Minna um afbókanir hjá erlendum ferðamönnum

Ný bylgja faraldursins skall á hér á landi um miðjan júlímánuð og nýttu íslenskir viðskiptavinir þá Covid-19 skilmála í auknum mæli til að breyta ferðadagsetningu sinni. Að sögn Play hafði þetta neikvæð áhrif á sætanýtingu í mánuðinum. Þó sé ekki um að ræða tekjutap heldur tilfærslu á tekjum og sætanýtingu.

Mun minna var um breytingar eða afbókanir meðal erlendra ferðamanna á leið til Íslands. Meirihluti þeirra farþega sem kaupa miða með Play eru erlendir ferðamenn eða farþegar sem hefja ferð sína utan Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Nú þegar merkir PLAY aukin ferðavilja og bókanir frá innlendum viðskiptavinum og stjórnendur félagsins eru bjartsýnir á komandi mánuði.“

Vel í stakk búin til að takast á við áhrif faraldursins

Flugfélagið fékk þrjár Airbus 321 neo farþegaþotur í sumar og eru þær allar komnar í notkun.

„Flugvélarnar koma inn í framleiðslu félagsins í takt við eftirspurn á markaði og eftir því sem flugáætlun félagsins þéttist. Hér nýtur félagið sveigjanlegra leigukjara sem gefur því kost á að stýra framboði sínu og um leið kostnaði félagsins með hagkvæmum hætti.  Félagið er þannig vel í stakk búið til að takast á við þau áhrif sem heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur í för með sér á næstu mánuðum,“ segir í tilkynningu.

„Markmið okkar er að byggja Play upp í öruggum og yfirveguðum skrefum og er góður árangur þessa fyrsta mánaðar í fullum rekstri traust og gott skref í þá átt. Við erum stolt af árangri okkar við erfiðar aðstæður og ég vil þakka starfsfólki okkar fyrir elju og dugnað og farþegum okkar fyrir að ferðast með Play,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play.  





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×