Straukst utan í vegfaranda í háskalegum akstri um miðborgina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. ágúst 2021 14:01 Eftirförin fór í góðan hring í hringum miðborgina og gott betur. Loftmyndir/Hjalti Rúmlega tvítugur karlmaður sem olli almannahættu þann 8. júlí síðastliðinn með ofsaakstri í miðbæ Reykjavíkur og víðar hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst. Hann er grunaður um fjölmörg afbrot undanfarnar vikur.
Lögreglu tókst að stöðva för mannsins á Sæbraut eftir mikla eftirför. Um góðkunningja lögreglunnar er að ræða miðað við gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum sem birtur hefur verið á vef Landsréttar. Lögregla hefur fimm önnur mál tengd karlmanninum til rannsóknar, þeirra á meðal líkamsárás og frekari akstur undir áhrifum. Eftirför sem hófst á bensínstöð Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um ökumann í annarlegu ástandi síðdegis síðdegis fimmtudaginn 8. júlí. Síðari tilkynningin barst um ökumanninn á bílaplaninu við N1 í Borgartúni. Lögreglumaður á mótorhjóli var ekki langt undan auk lögreglumanna í bíl. Gáfu þeir ökumanninum merki með forgangsljósum að stöðva akstur í Borgartúni við Katrínartún. Ökumaðurinn virti það að vettugi og hófst þá eftirförin. Ökumaðurinn ók vestur Sæbraut gegn rauðu ljósi við Snorrabraut og náði 100 kílómetra hraða á Sæbrautinni. Þar beygði hann gegn rauðu ljósi upp Frakkastíginn, þar austur Lindargötu á móti einstefnu. Áfram ók ökumaðurinn upp Vitastíginn og beygði austur Bergþórugötu. Aftur fór ökumaður yfir á rauðu ljósi við Eiríksgötu og ók suður Barónsstíg. Þar beygði hann inn á Laufásveg og ók að Njarðargötu þar sem hann tók vinstri beygju. Niður Njarðargötu ók hann að Sóleyjargötu þar sem hann brunaði í átt að Tjörninni og beygði inn á Skothúsveg þar sem hann ók yfir Tjarnarbrúna. Ökumaðurinn brunaði yfir Tjarnarbrúna með lögreglu á eftir sér.Vísir/Egill Ökumaðurinn ók gegn umferð stutta kaflann á Suðurgötu að hringtorginu við Hringbraut og þar vestur að Hofsvallagötu. Þar var hraði hans 80 kílómetrar á klukkustund en leyfilegur hámarkshraði er 40. Við Hofsvallagötu ók hann upp á gangstétt. Á þessum tímapunkti tóku aðrir lögregluþjónar á mótorhjóli og bílum við eftirförinni. Ökumaðurinn ók að sögn lögreglu svo nærri gangandi vegfaranda á Hringbraut að hann straukst utan í hann. Ók ökumaðurinn norður Ánanaust og svo austur Mýrargötu. Þá ók ökumaðurinn mjög greitt austur Geirsgötu. Hafði sjúkralið verið kallað út vegna þeirrar „gríðarlegu hættu“ sem hafði skapast. Tvisvar klárir með naglamottu Ökumaðurinn ók Geirsgötu í austur þar sem lögregluáhöfn beið tilbúin með naglamottu til að stöðva för bílsins. Þegar hann kom að Tryggvagötu ók ökumaðurinn á öfugum vegarhelmingi þar sem hann mætti tólf bílum, þeirra á meðal vörubíl. „Með þessu skapaðist mikil almannahætta og þurftu ökumenn nokkurra bifreiða að forða sér frá bifreiðinni,“ segir í greinargerð lögreglu. Ók ökumaður yfir umferðareyju og aftur á réttan vegarhelming. Þaðan ók hann Kalkofnsveg til norðausturs og svo austur Sæbraut. Á Sæbraut við Snorrabraut var lögregluáhöfn aftur búin að setja út naglamottu til að stöðva akstur bílsins. „Ætla má að ökumaður hafi orðið þess var en rétt áður en ökumaður kom að naglamottu tók ökumaður vinstri u-beygju yfir umferðareyju og ók Sæbraut aftur í vestur. Ók hann áfram Sæbraut í austur þar til hann stöðvaði akstur sinn við Frakkastíg. Frá handtöku mannsins á Sæbraut til móts við Frakkastíg.Rafaela Berger Var hann handtekinn en hann var sjáanlega í annarlegu ástandi við handtöku. Fram kemur að hann hafi viðurkennt sök í málinu við skýrslutöku hjá lögreglu daginn eftir. Grunaður um ofbeldi gegn konu Auk þessa máls hefur lögregla til meðferðar fimm mál þar sem ökumaðurinn er ýmist undir grun eða rökstuddum grun um refsiverða háttsemi. Öll brotin áttu sér stað á tíu daga tímabili, frá 28. júní til 8. júlí. Þá á ökumaðurinn tvö opin mál hjá lögreglu frá árinu 2019 er varða vörslu fíkniefna og peningaþvætti annars vegar en hins vegar er hann kærður fyrir meiriháttar líkamsárás. Eitt af málunum fimm sem lögregla hefur til rannsóknar er stórfelld líkamsárás á konu 3. júlí síðastliðinn. Hún tjáði lögreglu að karlmaðurinn hefði sparkað fyrirvaralaust í höfuð hennar þar sem hún sat í sófa inni í stofu. Sagði hún manninn í mikilli fíkniefnaneyslu og með miklar ranghugmyndir. Konan var að sögn lögreglu með sjáanlega áverka á andliti, bólgur og mar auk þess sem blóð lak úr nefi hennar. Húsráðandi staðfesti frásögn konunnar og sagðist hafa hent manninum út úr íbúðinni. Þann 26. júní var lögregla kölluð að íbúð á jarðhæð í Reykjavík þar sem svartri haglabyssu með fjórum skotum í hafði verið hent inn í gegnum opinn glugga. Maðurinn er ekki skráður eigandi skotvopnsins en til skoðunar hvort hann hafi staðið í hótunum við fólk í íbúðinni. Dæmdur fyrir tilraun til manndráps Karlmaðurinn á nokkurn sakaferil að baki. Meðal annars fangelsisdóm fyrir akstur undir áhrifum, nytjastuld, hraðakstur og óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Þá hefur hann hlotið sex mánaða dóm fyrir brot gegn tollalögum, óhlýðnast fyrirmælum og rán. Einnig dóm frá árinu 2017 fyrir tilraun til manndráps. Með vísan til brotaferils karlmannsins að undanförnu var það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að yfirgnæfandi líkur væru á því að hann héldi áfram brotastarfsemi gengi hann laus. Í ljósi fjölda brota sem hann er grunaður um og alvarleika þeirra sé gæsluvarðhald nauðsynlegt. Héraðsdómur Reyhjavíkur féllst á beiðni lögreglu. Karlmaðurinn kærði niðurstöðuna til Landsréttar sem staðfesti að hann skyldi vera í fangaklefa til 27. ágúst. Landsréttur beindi þó þeim tilmælum til lögreglu að hraða rannsókn þeirra mála sem er ólokið.
Lögreglumál Reykjavík Tengdar fréttir Brunaði á móti umferð í annarlegu ástandi með lögregluna á hælunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti bifreið eftirför á fimmta tímanum í dag frá miðbæ Reykjavíkur, vestur á Granda, aftur inn í miðbæ og að lokum út á Sæbraut, þar sem ökumaðurinn, karlmaður um tvítugt, var handtekinn eftir að dekk sprakk á bifreið hans. 8. júlí 2021 17:01 Mest lesið Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Erlent Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Innlent Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Erlent Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Innlent Svona verður Sæbraut í stokki Innlent Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn Innlent Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Innlent Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Innlent Mál hættulegra fyrrverandi fanga endi alltaf eins Innlent Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Innlent Fleiri fréttir Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn Svona verður Sæbraut í stokki Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Margt sem hægt sé að læra af Svíum í baráttunni gegn mansali Mál hættulegra fyrrverandi fanga endi alltaf eins Þjónusta hjálparsímans tryggð Mannskæður eldsvoði, garður ofan á Sæbraut og sviðakjammakaka Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Grímur sjálfkjörinn í sæti Ingvars Tæp tvö þúsund ný leikskólapláss í Reykjavík á næstu fimm árum Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Stokkur fjarlægi gjána sem skilji að Vogahverfin Hættir að taka krókinn um Háaleitisbraut og Miklubraut Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Mjög alvarlegt tilfelli Viðbúnaður í Vesturbæ og nikótínumræður á Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina slá skjaldborg um Flokk fólksins Skera niður til að mæta launahækkunum Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Bein útsending: Afmælisráðstefna Afstöðu Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Sjá meira
Brunaði á móti umferð í annarlegu ástandi með lögregluna á hælunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti bifreið eftirför á fimmta tímanum í dag frá miðbæ Reykjavíkur, vestur á Granda, aftur inn í miðbæ og að lokum út á Sæbraut, þar sem ökumaðurinn, karlmaður um tvítugt, var handtekinn eftir að dekk sprakk á bifreið hans. 8. júlí 2021 17:01