Viðskipti erlent

Apple hagnaðist um 2,7 billjónir króna

Samúel Karl Ólason skrifar
iPhone 12 hefur selst gífurlega vel.
iPhone 12 hefur selst gífurlega vel. EPA/ALEX PLAVEVSKI

Nýtt ársjórðungsuppgjör tæknirisans Apple, verðmætasta fyrirtækis heims, fór töluvert fram úr væntingum fjárfesta. Tekjur voru mun hærri en talið var og jukust um meira en þriðjung á milli ára. Þá jókst sala iPhone-síma um nærri því helming.

Uppgjörið sem um ræðir nær yfir þriðja ársfjórðung uppgjörsárs Apple sem endar í lok júní.

Tekjur fyrirtækisins á ársfjórðungnum voru 81,41 milljarður dala, sem er 36 prósenta hækkun miðað við sama tímabil í fyrra. Lauslega reiknað er 81,41 milljarður dala um það bil 10,3 billjónir króna (10.300.000.000.000).

Heildarhagnaður Apple á fjórðungnum var 21,7 milljarðar dala, sem samsvarar um 2,7 billjónum króna. Til samanburðar má benda á að verg landsframleiðsla Íslands árið 2020 var 2,9 billjónir króna, samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands.

Hagnaður á hvern hlut var 1,3 dalir. Í tilkynningu frá Apple segir að stjórn fyrirtækisins hafi ákveðið að arðgreiðslur yrðu 0,22 dalir á hlut.

Í frétt CNBC segir að fjárfestar hafi búist við rétt rúmlega einum dali í hagnað á hlut og 73,3 milljarða tekjum. Það sem hefur vakið hvað mesta athygli við uppgjör Apple er þó að sala iPhone síma jókst um 49,78 prósent á milli ára.

Er þar er að mestu um góða sölu á iPhone 12 að ræða.

Góður vöxtur í Kína og Ameríku

Þá vegnaði Apple mjög vel á markaðssvæði Kína, sem telur Taívan og Hong Kong með. Sölutekjur þar voru 14,76 milljarðar dala, sem samsvarar 58 prósenta aukning á milli ára. Í Ameríku voru sölutekjur 39,57 prósent og er það aukning um tæp 33 prósent.

Sölutekjur allra vara fyrirtækisins jukust um meira en tólf prósent á þriðja ársfjórðungi.

Áhugasamir geta séð frekari tölfræði um ársfjórðungsuppgjörið, sem endaði þann 26. júní, hér á vef Apple.

Í tilkynningu Apple er haft eftir Tim Cook, forstjóra Apple, að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi séð mikla aukningu í því að fólk hafi verið að skipta úr Android-síma, yfir í iPhone. Þá er líklegt að fjórðungurinn hefði orðið enn betri fyrir fyrirtækið ef það hefði ekki orðið fyrir barðinu á skorti á hálfleiðurum, sem hefur komið niður á framleiðslu um heiminn allan.

Sá skortur kom mest niður á framleiðslu Mac-tölva og spjaldtölva Apple, samkvæmt Cook. Hann segir einnig að skorturinn hafi ekki komið jafn mikið niður á rekstrinum og óttast var.

Uppfært: Áður stóð að verg landsframleiðsla Íslands árið 2020 hefði verið 1,5 billjón króna. Það var ekki rétt.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×