Kylfingar keppa um golfferð til Portúgal Sódavantssystur 22. júlí 2021 14:30 Meistaramótið í Betri bolta stendur nú sem hæst en sigurvegarar lokamótsins vinna golfferð til Portúgal og spila á Pinheiros Altos golfvellinum á Algarve. Enn er hægt að taka þátt í netkeppni. Enn er hægt að taka þátt í Meistaramótinu í Betri bolta og freista þess að vinna sæti á lokamótinu en sigurlið lokamótsins fær ferð til Portúgal. „
Þetta verður æsispennandi. Golfmótin sem eru búin hafa gengið mjög vel og verið virkilega skemmtileg. Nú þegar hafa yfir 30 pör tryggt sér þátttökurétt á lokmótinu. Það er eftir miklu að slægjast,“ segir Valdís Arnardóttir, en hún og Kristín Eysteinsdóttir eru leyfishafar International Pairs á Íslandi og standa fyrir Meistaramótinu í Betri bolta sem hefur verið á fljúgandi siglingu í sumar. Valdís Arnardóttir og Kristín Eysteinsdóttir eru leyfishafar International Pairs á Íslandi og standa fyrir Meistaramótinu í Betri bolta. Enn er hægt að taka þátt og freista þess að vinna sæti á lokamótinu sem haldið verður í Kiðjabergi þann 29. ágúst en sigurlið lokamótsins fær ferð til Portúgal þar sem það tekur þátt í alþjóðlegu móti í betri bolta, International Pairs, í október n.k. Fleiri geta tekið þátt gegnum netið Þær Valdís og Kristín segja fyrirkomulagið á mótinu nýtt fyrir Íslendingum en Meistaramótið í betri bolta er annars vegar netkeppni og hins vegar opin úrtökumót sem hafa verið haldin víða í sumar og eru enn í gangi. Þrjátíu pör hafa þegar tryggt sér þátttökurétt á lokamótinu. Enn er hægt að taka þátt gegnum netkeppnina og freista þess að vinna ferð til Portúgal. „Við höfum heyrt að þetta þyki dálítið flókið. Golfmót á netinu er vissulega nýtt af nálinni hér á landi en með netkeppninni er verið að gefa fleirum en þeim sem hafa tekið þátt í opnu mótunum tækifæri til þess að taka þátt í lokamótinu og freista þess að keppa í Portúgal. Það er því um að gera að freista gæfunnar og vera með í netkeppninni sem stendur til 16. ágúst,“ segir Kristín en fimm kylfingar úr netkeppninni, ásamt efstu liðinunum úr hverju opnu móti, öðlast þátttökurétt á Kiðjabergi. Hvernig tek ég þátt? Allir kylfingar 18 ára og eldri sem eru skráðir í golfklúbb geta tekið þátt í Netkeppninni, Skráning fer fram hér og er þátttökugjald 3.900 krónur. Kylfingur þarf að búa til notendanafn og lykilorð á www. meistaramot.is og á „þínu svæði“ eru skráð bestu punktaskor keppendanna. Meðaltal þriggja efstu skora gildir og komast fimm efstu keppendurnir í netkeppninni áfram í lokamótið í Kiðjabergi 29. Ágúst. Allir löglegir 18 holu hringir sem skráðir eru til forgjafar gilda og hægt er að uppfæra skráð skor eins oft og þarf fram til 16. ágúst. „Eins og áður sagði þá er þetta ný leið og hægt að nota vel spilaða hringi, skrá þá og freista þannig gæfunnar. Allt snýst þetta um að komast á lokamótið í Kiðjabergi og eiga möguleika á að vinna ferðina til Portúgals,“ segir Kristín. Pinheiros Altos golfvöllurinn á Algarve. Gist verður á fimm stjörnu hóteli í fjórar nætur en mótið sjálft er tveir dagar. Verðlaunin golf í sólinni í Portúgal Alþjóðlega golfmótið er haldið á Pinheiros Altos Golfvellinum á Algarve í Portúgal og yfir 30 aðrar þjóðir taka þátt. Það er stórglæsilegur golfvöllur þar sem spilað er við bestu aðstæður. Mótið sjálft er tveir dagar, auk þess sem spilaður er æfingahringur. Gist er á Dona Filipa, glæsilegu fimm stjörnu hóteli í fjórar nætur. „Þetta er glæsilegt mót í alla staði og mjög flott skipulagt prógramm er fyrir keppendur meðan á mótinu stendur með kvöldverðum, mótttökum og skemmtilegum uppákomum. Kylfingarnir frá Íslandi fá því frábært tækifæri til þess að mynda tengsl við áhugmenn frá öðrum löndum,“ segir Valdís. Nánari upplýsingar á www.meistaramot.is
Golf Mest lesið Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira