Viðskipti erlent

Netflix sækir á leikjamarkaðinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Ekki stendur til að rukka aukalega fyrir tölvuleiki Netflix.
Ekki stendur til að rukka aukalega fyrir tölvuleiki Netflix. Getty/Thiago Prudencio

Forsvarsmenn Netflix stefna á að bæta tölvuleikjum við streymisveitu sína á næsta ári. Fyrirtækið hefur ráðið fyrrverandi yfirmann hjá EA Games og Facebook til að stýra verkefninu.

Þetta kemur fram í frétt Bloomberg, þar sem segir að sá maður heitir Mike Verdu og hann hafi áður stýrt samvinnu Facebook við leikjaframleiðendur varðandi Oculus-sýndaveruleikagleraugun og tölvuleiki. Hann vann einnig að því koma leikjum eins og Sims, Plants vs. Zombies og Star Wars leikjum í snjalltæki.

Samkvæmt heimildum Bloomberg stendur ekki til að rukka aukalega fyrir tölvuleikina og eiga þeir að verða aðgengilegir í gegnum hefðbundnar leiðir Netflix. Það er að segja í gegnum vafra og forritið.

Í grein Bloomberg segir þó að til lengri tíma gæti þjónustan auðveldað Netflix að hækka verð.

Netflix hefur áður framleitt leiki með öðrum fyrirtækjum, sem byggja á þáttum fyrirtækisins. Þar á meðal eru Stranger Things en fyrirtækið gerði einnig kvikmyndina Black Mirror: Bandersnatch árið 2018 þar sem áhorfendur gátu tekið ákvarðanir fyrir aðalpersónu myndarinnar.

Í frétt Polygon er rifjað upp að forsvarsmenn Netflix hafa sagt að stærstu samkeppnisaðilar fyrirtækisins séu ekki endilega aðrar streymisveitur. Það séu leikir eins og Fortnite sem steli frekar tíma viðskiptavina en streymisveitan.

Epic Games hafa byggt heim í kringum Fortnite þar sem spilarar eiga samskipti sín á milli. Spilarar Fotnite hafa meðal annars horft á sjónvarpsþætti og tónleika innan leiksins.

Sífellt fleiri fyrirtæki reyna að skapa sambærilega stemningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×