Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Atli Ísleifsson skrifar 25. júní 2021 14:32 Götuhleðsla á bílastæði við Laugardalslaug í Reykjavík. ON Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Orku náttúrunnar. Segir að óvíst sé hvenær hægt verði að hleypa straumi á þær að nýju. Í tilkynningunni er framvinda málsins rakin og segir að Reykjavíkurborg hafi á sínum tíma boðið út uppsetningu og rekstur götuhleðsla og tekið tilboði frá ON sem bauð lægst í verkefnið. „Úrskurðarnefnd útboðsmála komst síðan að þeirri niðurstöðu eftir kæru Ísorku að Reykjavíkurborg hefði átt að bjóða verkið út á evrópska efnahagssvæðinu. Ekki var tekið undir önnur sjónarmið Ísorku sem þó voru fjölmörg. Samkvæmt niðurstöðu úrskurðarnefndar er ON hvorki heimilt að taka gjald fyrir afnot af götuhleðslunum né að sérmerkja bílastæðin sem þær standa við. Í stað þess að slökkva á hleðslunum og þannig gera rafbílaeigendum sem treysta á umræddar hleðslur erfitt fyrir ákvað ON að hætta að rukka og taka niður merkingar við stæðin. Hleðslur yrðu þá aðgengilegar öllum á meðan næstu skref væru metin. Þannig hlítti ON niðurstöðunni en styddi áfram það mikilvæga verkefni sem orkuskiptin í samgöngum er. Ísorka hefur nú aftur sent kvörtun til kærunefndarinnar, nú vegna þess hvernig ON hefur brugðist við þeirri niðurstöðu hennar að Reykjavíkurborg hefði átt að bjóða út á evrópska efnahagssvæðinu. Í bréfi sem barst ON frá Reykjavíkurborg í morgun segir að vegna athugasemda Ísorku telji borgin nauðsynlegt að óska eftir því að ON rjúfi straum til umræddra hleðslustöðva. Þá segir einnig að Reykjavíkurborg hafi farið þess á leit við kærunefnd útboðsmála að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað,“ segir í tilkynningunni. Sérstakar aðstæður réttlæta beiðni um frestun Reykjavíkurborg hefur sömuleiðis sent frá sér tilkynningu vegna málsins og telur að sérstakar ástæður réttlæti að beiðni um frestun á réttaráhrifum verði tekin til greina. „Aðalskylda samningsins um uppsetningu hleðslustöðva hefur þegar verið uppfyllt að næstum öllu leyti og þjónusta verið við borgarbúa til samræmis við ákvæði samningsins um nokkurt skeið. Því er niðurstaða úrskurðarins verulega íþyngjandi fyrir aðila máls og íbúa og gesti Reykjavíkur. Fyrirséð er að óvirkni samningsins, jafnvel þótt hún kunni einvörðungu að vara um skamman tíma, mun leiða til þess að eigendur rafbíla sem hafa fjárfest í þeim í trausti þess að eiga auðvelt aðgengi að hraðri hleðslu þeirra eiga nú erfiðara um vik með að nýta sér þá. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála frá 22. október sl. þar sem kröfu Ísorku ehf. um að umrætt útboð yrði stöðvað um stundarsakir var hafnað. Báðir samningsaðilar, Reykjavíkurborg og ON, voru því í góðri trú um að halda áfram með að efna samninginn sem komst á í kjölfar hins kærða útboðs. Af hálfu Reykjavíkurborgar stendur yfir vinna við að kanna grundvöll þess að láta reyna á lögmæti úrskurðarins sem eins og áður hefur komið fram, lýtur að áætlaðu verðmæti samnings, kostnaðaráætlun, og hvort bjóða hefði átt út sérleyfissamning á Evrópska efnahagssvæðinu í stað almenns útboðs sem fór fram innanlands. Samhliða því er unnið að undirbúningi nýs útboðs,“ segir í tilkynningunni.
Reykjavík Samkeppnismál Bílar Orkumál Vistvænir bílar Neytendur Hleðslustöðvar Bílastæði Tengdar fréttir Hleðsla rafbíla í áskrift Orka náttúrunnar hefur kynnt til sögunnar nýja lausn á Íslandi þegar kemur að hleðslu rafbíla við heimahús, hvort sem er einbýli eða fjölbýli. 23. júní 2021 07:01 Mest lesið Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair Neytendur Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum Atvinnulíf Veitingastaðurinn opinn en lónið opnar síðar Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Gjafmildur kaupmaður gefur fötluðum börnum spjaldtölvur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Sjá meira
Hleðsla rafbíla í áskrift Orka náttúrunnar hefur kynnt til sögunnar nýja lausn á Íslandi þegar kemur að hleðslu rafbíla við heimahús, hvort sem er einbýli eða fjölbýli. 23. júní 2021 07:01