Enn einn sigur Belga

Anton Ingi Leifsson skrifar
Magnaðir Belgar.
Magnaðir Belgar. Igor Russak/Getty

Belgía endar með fullt hús stiga í B-riðlinum á Evrópumótinu eftir 2-0 sigur á Finnlandi í Rússlandi.

Staðan var markalaus í hálfleik en Belgarnir héldu að þeir væru að komast yfir á 65. mínútu. Markið var þó dæmt af vegna rangstöðu.

Níundu mínútum síðar kom þó fyrsta markið en Lukas Hradecky varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Romelu Lukaku bætti svo við enn einu markinu, og að sjálfsögðu eftir undirbúning Kevin De Buyne, níu mínútum fyrir leikslok og þar við sat.

Belgía endar með níu stig á toppnum en Finnland er í þriðja sætinu með þrjú stig. Þeir eiga því enn möguleika á að komast áfram sem eitt af liðunum með besta árangurinn í 3. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira