Innlent

Hægt að spá fyrir um hvenær maður deyr með blóðprufu

Kristín Ólafsdóttir skrifar

Hægt er að spá fyrir um það með talsverðri nákvæmni hvað fólk á langt eftir ólifað með því að skoða prótein í blóði, samkvæmt nýrri rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar. Niðurstöðurnar gætu til dæmis nýst til lyfjaþróunar.

Rannsóknin hófst fyrir tveimur árum en fræðigrein er væntanleg á næstu vikum. Mæld voru prótein, eða eggjahvítuefni, í blóði um fjörutíu þúsund Íslendinga. Hjá rúmlega helmingi var blóðinu safnað fyrir tuttugu árum og af þeim eru rúmlega sjö þúsund látnir.

„Þá getum við fundið fimm prósent af fólki milli 60 og 80 ára sem eru með tæplega 90 prósent líkur á að deyja innan næstu fimm ára. Síðan getum við fundið önnur fimm prósent sem eiga raunverulega engar líkur á að deyja innan næstu fimm ára,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Og er það þá bara þannig að það væri hægt að taka blóðprufu úr manneskju og spá fyrir um hvenær hún deyr? 

„Það væri hægt að leiða líkum að því hvað hún komi til með að lifa lengi eða skamman tíma. En allar þessar tölur byggjast á meðaltali, þetta er þó ekki annað en spádómur sem er nokkuð nákvæmur. En þó með töluverða skekkju,“ segir Kári. 

Myndi ekki vilja vita sjálfur

Líkur á því að deyja fljótlega tengjast ýmsum eiginleikum, að sögn Kára. Þeir sem séu líklegri til að eiga stutt eftir ólifað séu til dæmis með mun minni handstyrk en almennt gerist.

„Þeir standa sig verr í úthaldsprófi, þeir standa sig verr á gáfnaprófum.“

En hvernig geta þessar niðurstöður nýst? Til dæmis til lyfjaþróunar, segir Kári, en kveðst þó ekki hafa áhuga á því sjálfur að vita ævi sína alla.

„Ég er ekkert sérstaklega forvitinn um að vita hversu mikið ég á eftir. Ég vona að það verði sem mest en ég er búinn að lifa ágætu lífi. Það er allt í lagi þó að það verði búið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×