Innlent

Varnargarðurinn hafi staðið „ótrúlega lengi“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ari Guðmundsson, verkfræðingur hjá Verkís.
Ari Guðmundsson, verkfræðingur hjá Verkís. Skjáskot

Hraun hóf að renna yfir vestari varnargarðinn við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun en verkfræðingur segir garðinn hafa staðið ótrúlega lengi. Verið er að skoða nýja leið til að stjórna hraunrennsli úr Nátthaga.

Hraun er nú runnið yfir báða varnargarðana sem reistir voru í Nátthaga en sá austari, sem var talsvert lægri en sá vestari, var rofinn strax í síðasta mánuði. Ari Guðmundsson verkfræðingur hjá Verkís sem kom að hönnun garðanna segir að atburðir morgunsins hafi verið viðbúnir.

„Við vonuðumst til að geta tafið þetta enn meira en eftir því sem komið var og var farið að renna yfir austari varnargarðinn þá var þetta kannski tímaspursmál hvenær þetta færi yfir vestari varnargarðinn en það má segja að hann hafi staðið ótrúlega lengi,“ segir Ari.

Verið er að skoða hvort hægt sé að beina hrauninu í þennan farveg.vísir

Tilraunin með varnargarðana muni reynast mikilvæg upp á forvarnarstarf í framtíðinni. Nú sé verið að skoða hvernig hægt sé að taka á móti hraunflæðinu niður í Nátthaga á annan máta.

„Það eru núna uppi hugmyndir og við höfum verið að skoða það að beina hraunrennslinu til austurs um skarð, framan við Langahrygg og þar myndum við þurfa að gera rás og þá myndi hraunið fara austur fyrir Slögu og koma niður á betri stað gagnvart Suðurstrandarveginum.“

Ef takist að koma hrauninu niður í sjó á þeim slóðum verði mögulega hægt að bjarga Ísólfsskála og svæðinu þar í kring.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×