Lúxushárvörur úr smiðju fullkomnunarsinna HJ 7. júní 2021 09:29 Hársnyrtimeistarinnn Antonio Axu gerir miklar kröfur og hannaði eigin hárvörulínu. Vísir mælir með lúxushárvörunum frá Antonio Axu.
Antonio Axu hárvörulínan kemur úr smiðju sænska hársnyrtimeistarans Antonio Axu sem er einn helsti hárstílisti fræga fólksins í Svíþjóð. Antonio hóf ferilinn í hársnyrtibransanum aðeins 16 ára. Hann opnaði ungur eigin stofu og varð fljótlega eftirsóttur hársnyrtimeistari. Hann lýsir sjálfum sér sem fullkomnunarsinna og segir að leit hans að hinum fullkomnu hárvörum til að vinna með hafi orðið til þess að hann þróaði sína eigin línu. „Það sem knýr mig áfram er gífurleg ástríða fyrir handverki og faglegum vinnubrögðum. Að geta sett af stað mína eigin hárgreiðslulínu út frá reynslu minni og sérþekkingu er eitt stærsta skref sem ég hef tekið á mínum ferli,“ segir Antonio Axu. Innblásturinn sækir hann í daglegt líf á stofunni og í samtali við viðskiptavini sínaum væntingar þeirra og þarfir. „Hönnun og litir náttúrunnar eru einnig mikill innblástur. Ég fæ innblástur frá öllu því sem er fallegt og merkilegt,“ segir Antonio Axu. Antonio Axu vörurnar henta öllum hárgerðum en við þróun línunnar var sérstaklega horft til þess að byggja upp fíngert hár. Antonio Axu vörulínan er framleidd í Svíþjóð. Hún inniheldur sjampó og hárnæringu fyrir allar gerðir hárs auk sérstakra vara sem næra hársvörðinn og byggja upp hárið. Þá inniheldur línan breytt úrval mótunarvara. Antonio Axu vörurnar henta öllum hárgerðum en við þróun línunnar var sérstaklega horft til þess að byggja upp fíngert hár. Línan inniheldur einnig áhrifaríkar vörur gegn flösu og viðkvæmum hársvörð. Scalp vörurnar frá Antonio Axu njóta mikilla vinsælda. Scalp Care sjampóið fer mjúkum höndum um hárið og hreinsar það án þess að erta hársvörðinn. Sjampóið vinnur gegn kláða og þurrki svo hársvörðurinn flagnar síður og hárið verður flauelsmjúkt og skínandi. Sjampóið inniheldur meðal annars ensím úr granateplum og piparmyntu sem kælir og frískar hársvörðinn. Scalp Treatment er róandi serum sem kælir þurran hársvörðinn, gefur mikinn raka og dregur sýnilega úr flösu. Serumið inniheldur meðal annars bambus og lótusblóm og hyaluronic sýru. Antonio Axu lúxushárvörurnar fást í Hagkaup og Lyf og Heilsu.
Heilsa Tíska og hönnun Mest lesið Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Atvinnulíf Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Viðskipti innlent Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Viðskipti erlent Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Viðskipti innlent Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Neytendur Síminn má dreifa efni Sýnar Viðskipti innlent Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Viðskipti innlent Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Viðskipti innlent Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira