Innlent

Björguðu hrossum sem urðu strandaglópar í Þjórsá

Kjartan Kjartansson skrifar
Tæplega tuttugu hross voru í stóðinu. Björgunarsveitarfólki tókst að teyma það yfir Þjórsá.
Tæplega tuttugu hross voru í stóðinu. Björgunarsveitarfólki tókst að teyma það yfir Þjórsá. Landsbjörg

Björgunarsveitarfólki úr uppsveitum Árnessýslu tókst að koma stóði hrossa sem urðu strandaglópar á sandeyri í miðri Þjórsá á þurrt land í kvöld.

Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að svo virðist sem að stóðið hafi farið út á eyrina á þurru en svo hafi hækkaði í ánni. Hrossin, sem voru tæplega tuttugu talsins, hafi þá veigrað sér við að fara yfir ána.

Allt fór þó vel að lokum því björgunarsveitarfólk óð yfir ána, kom taumi á nokkur þeirra og teymdi yfir á bakkann. Afgangurinn af stóðinu fylgdi þá á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×