Viðskipti innlent

Stjörnu­torg Kringlunnar mun færa sig um set

Atli Ísleifsson skrifar
Framkvæmdir munu standa yfir á svæðinu frá bílastæðunum austan megin við Kringluna við Borgarleikhúsið og að rúllustigunum við enda bíógangsins. Ævintýralandið mun meðal annars fá yfirhalningu.
Framkvæmdir munu standa yfir á svæðinu frá bílastæðunum austan megin við Kringluna við Borgarleikhúsið og að rúllustigunum við enda bíógangsins. Ævintýralandið mun meðal annars fá yfirhalningu. Vísir/Vilhelm

Til stendur að ráðast í miklar framkvæmdir á þriðju hæð Kringlunnar sem munu meðal annars skila sér í nýrri mathöll, breyttu Ævintýralandi og svokölluðum búbblublómaskála. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hált til tvö ár.

Frá þessu segir í Fréttablaðinu í morgun, en svæðið sem um ræðir er frá bílastæðunum austan megin við Kringluna við Borgarleikhúsið og að rúllustigunum við enda bíógangsins.

Haft er eftir Sigurjóni Erni Þórssyni, framkvæmdastjóra Kringlunnar, að opnunartími þessa nýja svæðis verði lengri en hefðbundinn opnunartími verslunarmiðstöðvarinnar.

Sigurjón Örn segir að Stjörnutorg, þar sem nú megi finna fjölda veitingastaða, muni flytjast til og þannig rýma fyrir nýju afþreyingasvæði.

Hann segir sömuleiðis að þær verslanir sem fyrir eru á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði muni flytja á annan stað í húsinu.

Að neðan má sjá myndir sem gefa mynd af því hvernig verður um að litast á svæðinu að framkvæmdum loknum.

Kringlan

Kringlan

Kringlan

Kringlan

Tilkynning frá Kringlunni sem send var á fjölmiðla í morgun:

Ákveðið hefur verið að endurskipuleggja og breyta þriðju hæð Kringlunnar þannig að hún verði sem nýr áfangastaður fyrir fjölskyldur, pör og vinahópa. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hálft til tvö ár.

Framkvæmdir við þriðju hæðina hefjast innan tíðar en á hæðinni mun verða boðið upp á skemmtilega og fjölbreytta nýbreytni í afþreyingu og veitingum. Flestir munu geta fundið eitthvað við sitt hæfi í hlýlegu og notalegu umhverfi. Nýir afþreyingarmöguleikar, sem verða kynntir á næstunni, munu koma til viðbótar við Sambíóin og Borgarleikhúsið og auka þannig mannlíf á svæðinu og fjölbreytileika þess.

Þriðja hæðin mun eftir endurskipulagningu hafa sitt eigið aðdráttarafl með lengdan opnunartíma en svæðið mun þó áfram þjóna gestum Kringlunnar á opnunartíma verslana. Ævintýralandið fær yfirhalningu og verður enn eftirsóknarverðara fyrir yngsta hópinn.

Nú þegar má sjá breytingar á suðurenda Kringlunnar enda hefur þjónusta sem opin er lengur eflst á svæðinu. World Class opnaði nýverið og þjónustuver Kringlunnar, þar sem sækja má netpantanir úr verslunum utan opnunartíma eru innan svæðisins. Innan skamms opnar nýr veitingastaður,Finnsson Bistro, á svæðinu. Það er því til mikils að hlakka þegar þriðja hæðin verður komin á nýtt stig og tilbúin til að taka á móti þér og þínum með nýbreytni í veitingum og afþreyingu. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×