Innlent

Kostar 1.000 krónur frá og með deginum í dag að leggja við gosstöðvarnar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Gjaldskyldan tekur gildi í dag en eftirliti með henni verður komið á smám saman.
Gjaldskyldan tekur gildi í dag en eftirliti með henni verður komið á smám saman. Mynd/Kristján Örn Kristjánsson

Von er á tilkynningu frá Landeigendafélagi Hrauns sf. í dag, þar sem tilkynnt verður um gjaldtöku á bílastæðunum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Nú þegar er hægt að greiða fyrir að leggja bílnum í Parka-smáforritinu.

Þetta staðfestir Sigurður Guðjón Gíslason, einn landeigenda, í samtali við mbl.is en miðillinn greindi frá því gær að skilti væri komið upp á svæðinu með upplýsingum um gjaldskylduna.

Fram kemur á skiltinu að það kostar þúsund krónur að leggja.

Sigurður segir að rafrænu eftirliti verði komið á hægt og rólega og þá standi til að leggja ný bílastæði nær gosstöðvunum og leggja veg til að tryggja öryggi fólks og auðvelda aðgang. Framkvæmdirnar komi til með að stytta gönguleiðina um þrjá kílómetra.

„Ég held það sé bara allra hagur að ráðast í þessar framkvæmdir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×