Ronaldo tryggði endurkomusigur Juventus

Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Juventus í endurkomusigrinum í dag.
Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Juventus í endurkomusigrinum í dag. Alessandro Sabattini/Getty Images

Tvö mörk frá Cristiano Ronaldo á seinustu tíu mínútum leiksins tryggðu Juventus 2-1 sigur gegn Udinese í ítalska boltanum í dag.

Nahuel Molina kom Udinese yfir strax á tíundu mínútu eftir stoðsendingu frá Rodrigo De Paul, og staðan var 1-0 fyrir heimamönnum þegar flautað var til hálfleiks.

Það gekk illa fyrir ríkjandi Ítalíumeistara að brjóta heimamenn á bak aftur, og það dró ekki til tíðinda fyrr en á 83. mínútu. Rodrigo De Paul handlék þá knöttinn innan vítateigs og vítaspyrna dæmd.

Cristiano Ronaldo steig á punktinn og kláraði vítið af öryggi og staðan því orðin 1-1.

Adrein Rabiot kom inn á sem varamaður á 84. mínútu fyrir gestina, og á seinustu mínútu venjulegs leiktíma átti hann frábæra fyrirgjöf frá vinstri kanntinum. Fyrrnefndur Cristiano Ronaldo gerði vel í að stanga boltann í netið og tryggja gestunum stigin þrjú.

Sigurinn kemur Juventus enn og aftur upp í Meistaradeildarsæti, en baráttan um annað til fjórða sæti á Ítalíu er mjög hörð nú þegar fjórir leikir eru eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira