Mílanóliðin misstígu stig en sigur hjá Juventus

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lukaku pirrar sig í kvöld.
Lukaku pirrar sig í kvöld. Claudio Villa/Getty

Topplið Inter Milan gerði jafntefli við Spezia á útivelli í kvöld en AC Milan tapaði gegn Sassuolo á heimavelli á meðan Juventus vann sigur á Parma.

Hakan Calhanoglu kom AC yfir gegn Sassuolo en tvö mörk frá Giacomo Raspadori í síðari hálfleik tryggðu Sassuolo sigur. AC er nú tíu stigur á eftir Inter.

Inter mistókst að komast tólf stigum á undan AC er liðið gerði 1-1 jafntefli við Spezia á útivelli. Heimamenn komust yfir en Ivan Perisic jafnaði metin í fyrri hálfeik fyrir Inter og þar við sat.

Juventus vann 3-1 sigur á Parma. Tórínóliðið lenti undir en tvö mörk frá Alex Sandro og eitt frá Matthijs de Ligt tryggði ríkjandi meisturunum sigurinn.

Juventus er í þriðja sætinu, stigi á eftir AC Milan og ellefu stigum á eftir Inter.


Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira