PSG í undanúrslit og Evrópumeistararnir úr leik

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kylian Mbappe og félagar hans eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Kylian Mbappe og félagar hans eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar. AP Photo/Joan Monfort

Paris Saint-Germain eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir bráðfjörugan leik gegn Bayern München á heimavelli. Lokatölur 0-1 fyrir Bayern, en PSG fer áfram á útivallarmörkum eftir 2-3 sigur í München.

Það var nóg um að vera í fyrri hálfleik og bæði lið fengu nokkur ákjósanleg færi til að komast yfir. Neymar átti til að mynda skot í stöng á 37. mínútu fyrir Parísarmenn.

Það voru þó gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins á 40. mínútu þegar að Eric Maxim Chuopo-Moting fylgdi skoti David Alaba vel eftir.

Ekki var meira skorað í fyrri hálfleik og Evrópumeistararnir því með eins marks forystu þegar gengið var til búningsherbergja.

Gestirnir frá München sóttu og sóttu allan seinni hálfleikinn og voru greinilega staðráðnir í því að sækja þetta mark sem þeir þurftu til að koma sér í undanúrslitin.

Parísarmenn fengu þó einnig sín færi, og á 78. mínútu slapp Kylian Mbappe einn inn fyrir. Mbappe kláraði færið af stakri snilld, en flagg aðstoðardómarans var farið á loft og markið því réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

Gestirnir náðu ekki að skora markið mikilvæga og það eru því Mauricio Pochettino og lærisveinar hans í PSG sem eru komnir í undanúrslit.

PSG mætir annað hvort Manchester City eða Dortmund í undanúrslitum, en þau eigast við á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 klukkan 18:50.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira