Samstarf

Nýtt og spennandi hverfi í Húsafelli

Húsafellsskógur
Framkvæmdir eru  hafnar við nýtt sumarhúsahverfi í Húsafelli. 
Framkvæmdir eru  hafnar við nýtt sumarhúsahverfi í Húsafelli. 

Framkvæmdir eru hafnar við nýtt sumarhúsahverfi á Húsafelli. Áætlað er að afhenda fyrstu húsin í haust.

Nýtt og glæsilegt sumarhúsahverfi rís nú í Húsafellsskógi. Hverfið hefur verið í þróun í 15 ár og vildu eigendur leggja allt kapp á að skapa heildrænt útlit og hönnun fyrir svæðið. Markmiðið er að húsin falli sem best inn í landslagið og hvert hús fái að njóta besta mögulega útsýnis. Ómar Pétursson hjá Nýhönnun sá um hönnun og Hermann Daði Hermannsson verður húsasmíðameistari. 

Í boði eru 3 húsgerðir frá 88 fermetrum upp í 139 fermetra hús auk gestahúss. Kaupendur geta fengið húsin afhent á mismunandi byggingarstigi; Fokheld, tilbúin til innréttinga eða fullbúin. Verð fyrir fullbúið hús samkvæmt skilalýsingu á eignarlóð með hitaveitu og ljósleiðara verður frá  47.6 milljónum króna.

Umhverfið er fallegt.

„Við hönnun húsanna var lögð áhersla á útsýni og þægindi fyrir alla fjölskylduna,” útskýrir Unnar Bergþórsson, verkefnastjóri. „Þetta eru rúmgóð hús með glæsilegri stofu og eldhúsi, aðskildum svefnherbergjum og salerni með gufu og aðgengi í heitan pott.”

Hverfið er vel skipulagt og tengist núverandi byggð með stígum.Tölvumynd: ONNO ehf.

Hægt að leigja húsin út gegnum Hótel Húsafell

Hverfið er í Húsafellsskógi og tengt við núverandi Húsafellsbyggð með stígum þar sem sækja má tilheyrandi þjónustu og afþreyingu. Fyrstu kaupendum gefst tækifæri á að fá hlut í afþreyingarskemmu fyrir leiktæki s.s. fjórhjól, snjósleða, buggy eða önnur farartæki. Þá geta eigendur leigt húsin sín út gegnum Hótel Húsafell.

Í boði eru 3 húsgerðir frá 88 fermetrum upp í 139 fermetra hús auk gestahúss.Tölvumynd: ONNO ehf.

„Við bjóðum nýja þjónustu, sem tilkeyrð var á árunum 2018 og 2019 og gafst einstaklega vel, þar sem eigendum húsa gefst tækifæri til þess að leigja út húsin þegar þau eru ekki í einkanotkun,” segir Unnar. Með því fyrirkomulagi geti eigendur auðveldað sér kaupin.

„Um leið og þú eignast sumarhús sem þú nýtir í eigin frítíma fjármagnar þú hluta hússins og rekstur þess með útleigu. Hótelið sér um alla sölu og markaðssetningu ásamt því að Þjónusta húsin með þrifum og annarri tilfallandi þjónustu,” útskýrir Unnar. Einnig sé unnið að því að hægt verði að skrá lögheimili í nýja hverfinu á Húsafelli, sem einnig opnar möguleika á betri lánakjörum.

Tölvumynd: ONNO ehf.

„Það er gert í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu sökum Covid19 faraldursins. Eftirspurn hefur aukist meðal einstaklinga, ferðamanna og fyrirtækja eftir búsetukostum utan borga þar sem finna má alla lykil innviði ásamt stórbrotnu landslagi og afþreyingu. Því er unnið að því að breyta aðalskipulagi svo hægt sé að skrá lögheimili í nýja hverfinu á Húsafelli,” útskýrir Unnar.

Tölvumynd: ONNO ehf.

Framkvæmdir eru nú þegar hafnar og gert er ráð fyrir afhendingu fyrstu húsa á haustmánuðum 2021. Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar og bóka skoðun. 

Fjölbeytt afþreying í fjölskylduparadís

Húsafell á sér langa sögu sem áningarstaður ferðalanga yfir Arnarvatnsheiði og í áranna rás hefur verið byggð upp sannkölluð orlofsparadís fyrir fjölskylduna. Á svæðinu er glæsilegt hótel, sundlaug og golfvöllur, tjaldsvæði og verslun. Skemmtilegt leiksvæði fyrir börn, hoppupúði og fótbolta-, körfubolta- og strandsblaksvöllur og á svæðinu er einnig að finna Listasafn Páls á Húsafelli.

Fjölskylduparadís með fjölbreyttri þjónustu og afþreyingu við allra hæfi

Á Húsafelli er ný Afþreyingarmiðstöð þar sem gestir geta fengið upplýsingar um þá fjölbreyttu afþreyingu sem er í boði á Húsafelli og nágrenni. Þar geta gestir bókað í ferðir og fengið upplýsingar um göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir sem henta öllum hópum. 

Fjölbreyttar gönguleiðir er að finna um svæðið sem henta hverskonar hópum. 

Frá Húsafelli er hægt hellaferðir bæði í íshelli og í hraunhella, giljaböð og í veiðiferðir. Þá er hálendið í kringum Húsafell paradís allan ársins hring fyrir útivistar- og náttúruunnendur .

Giljaböðin hafa mikið aðdráttarafl




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×