Fótbolti

Lars ekki með í Armeníu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Lars Lagerback
Lars Lagerback vísir/getty

Lars Lagerback, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, ferðaðist ekki með íslenska hópnum yfir til Armeníu.

Íslenska liðið ferðaðist til Armeníu frá Þýskalandi í gær en liðið mætir Armenum á Vazgen Sargsyan leiknum í Jerevan á morgun í gríðarlega mikilvægum leik.

Lagerback var á hliðarlínunni í 3-0 tapinu gegn Þjóðverjum á fimmtudag en hann mun snúa aftur á hliðarlínuna í leiknum gegn Liechtenstein á miðvikudag.

Leikur Íslands og Armeníu hefst klukkan 16:00 á morgun en Armenar unnu 1-0 sigur á Liechtenstein á sama tíma og strákarnir okkar biðu lægri hlut fyrir Þjóðverjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×