Makamál

Spurning vikunnar: Af hverju hélst þú framhjá?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hver ætli sé algengasta ástæða þess að fólk haldi framhjá og ætli það sé einhver munur þar á kynjunum? 
Hver ætli sé algengasta ástæða þess að fólk haldi framhjá og ætli það sé einhver munur þar á kynjunum?  Getty

Flestir myndu telja framhjáhöld þau svik sem rista hvað dýpst í samböndum. Þegar fólk svíkur maka sinn á þennan hátt er oftar en ekki mikil vanlíðan og sorg sem fylgir í kjölfarið. Sum sambönd ná að vinna sig út úr þessum svikum en önnur ekki. 

Spurning vikunnar að þessu sinni er beint til þess fólks sem hefur haldið framhjá maka sínum og er spurt um ástæðu framhjáhaldsins. Könnunin er kynjaskipt og fólk beðið um að svara þeirri könnun sem á við.

Af hverju hélst þú framhjá?

Konur svara hér: 

Karlar svara hér: 


Tengdar fréttir

Bíómyndabónorð við gosið sem heppnaðist fullkomlega

„Ég var alltaf með einhverja svona bíómyndasenu í huga og þetta var búið að vera á planinu í smá tíma, ég hafði bara aldrei fundið rétta tímann. Svo byrjaði bara að gjósa,“ segir hinn nýtrúlofaði Ásmundur Þór Kristmundsson í samtali við Vísi.

Kunnum við ekki nógu vel að meta maka okkar?

Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis um upplifun þeirra á því hvort maki þeirra kynni að meta þá. Niðurstöðurnar komu töluvert á óvart. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×