Real Madrid setja pressu á nágranna sína

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Karim Benzema skoraði tvö mörk Madrídinga í dag.
Karim Benzema skoraði tvö mörk Madrídinga í dag. Diego Souto/Quality Sport Images/Getty Images

Benzema kom Real Madrid yfir á 20. mínútu leiksins eftir undirbúining frá Toni Kroos, en það sama var á boðstólnum í öðru marki gestanna, þegar Toni Kroos lagði upp annað mark fyrir Frakkann.

Santi Mina minnkaði muninn fyrir heimamenn fimm mínútum fyrir hálfleik.

Svo virtist sem þetta yrðu lokatölur, en Marco Asensio gulltryggði sigurinn á 94. mínútu eftir stoðsendingu frá títtnefndum Karim Benzema.

Real Madrid situr nú í öðru sæti deildarinna með 60 stig, stigi á undan Barcelona í þriðja sætinu og þrem stigum á eftir nágrönnum sínum í Atletico Madrid.

Barcelona og Atletico Madrid hafa bæði spilað einum leik minna en Real, og spila þau bæði á morgun. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira