Matur

Rauða flauelstertan úr fyrsta þætti af Blindum bakstri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tobba og Júlíana Sara hlógu mikið eftir að þær afhjúpuðu sínar tertur og sáu það sem Eva Laufey hafði bakað.
Tobba og Júlíana Sara hlógu mikið eftir að þær afhjúpuðu sínar tertur og sáu það sem Eva Laufey hafði bakað. Samsett mynd

Í fyrsta þættinum af baksturskeppninni Blindur bakstur bökuðu Eva Laufey Kjaran, Tobba Marínós og Júlíana Sara klassíska rauða flauelstertu. Eva Laufey deilir hér uppskriftinni úr þættinum. 

Eins og vakti athygli þá var útkoma þeirra þriggja mjög ólík þó að allar hafi þær bragðast vel.

Rauð flauelsterta

3 x 20 cm form

  • 180 g smjör, við stofuhita
  • 315 g sykur
  • 3 egg
  • 1 tsk vanilludropar
  • 375 g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 msk kakó
  • 250 ml súrmjólk
  • 1 msk edik
  • 1 tsk matarsódi
  • 2-3 msk rauður matarlitur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur).
  2. Þeytið sykur og smjör þar til létt og ljóst.
  3. Bætið eggjum út í , einu i einu og þeytið vel á milli.
  4. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og kakó.
  5. Bætið súrmjólkinni saman og matarlitnum. Gott að skafa hliðarnar á skálinni einu sinni til tvisvar.
  6. Blandið saman í skál ediki og matarsóda, bætið út í og hrærið vel. Þegar deigið er orðið silkimjúkt þá má skipta því niður í þrjú vel smurð form og gott er að setja bökunarpappír í botninn á forminu áður en þið hellið deiginu í formin.
  7. Bakið við 180°C í 25-27 mínútur.
  8. Kælið kökurnar vel áður en þið setjið kremið á. (Sjá uppskrift hér að neðan)

Kremið:

  • Rjómaostakrem
  • 500 g smjör, við stofuhita
  • 700 g flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 300 g rjómaostur, við stofuhita

Aðferð:

  1. Þeytið smjörið í smá stund þar til það er orðið létt og ljóst, bætið flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum.
  2. Bætið rjómaostinum saman við og vanilludropum. Þeytið þar til þið eruð ánægð með þykktina á kreminu.
  3. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið á milli botnanna og yfir kökuna.
  4. Skreytið að vild með ferskum berjum

Tengdar fréttir

Fengu hláturskast þegar kökurnar voru afhjúpaðar

Fyrsti þátturinn af Blindur Bakstur var sýndur um helgina á Stöð 2 en um er að ræða nýja keppni í kökubakstri. Þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran fékk þær Tobbu Marínós og Júlíönnu Söru til þess að baka „red velvet“ köku og var útkoman virkilega skemmtileg.

Fyrsta íslenska baksturskeppnin fer í loftið á Stöð 2

„Við höfum verið með hugmynd að kökuþætti í langan tíma og löngu tímabært að fá íslenska kökukeppni í loftið. Það eru svo margir skemmtilegir baksturs- og kökuþættir erlendis og því fannst mér alveg tilvalið að fara af stað með þetta hér á landi,“ segir Eva Laufey í samtali við Vísi.

Tannlaus Eva Laufey grætur úr hlátri: „Ég kem bara inn til að laga tennurnar“

„Nú er Instagram aðeins að blekkja. Ég er núna búin að vera að setja inn myndir af tökunum, ofboðsleg skvís, ofboðsleg skvís!“ segir dagskrágerðarkonan Eva Laufey Kjaran í nýjust færslu sinni á Instagram. Eva situr við spegil, uppstríluð og fín þar sem hún er að gera sig tilbúna fyrir tökur á nýjasta þætti sínum Blindur Bakstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×