Messi allt í öllu en Barcelona úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi var allt í öllu í kvöld.
Messi var allt í öllu í kvöld. Julien Mattia/Getty

Barcelona var með mikla yfirburði gegn PSG er liðin mættust öðru sinni í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leiknum í París í kvöld lauk þó með 1-1 jafntefli og samanlagt 5-2 fyrir PSG.

Það voru ekki margir sem bjuggust við því að Börsungar myndu koma til baka eftir 4-1 tapið í fyrri leiknum en Lionel Messi og félagar byrjuðu af miklum krafti í París.

Þeir fengu hvert færið á fætur öðru. Keylor Navas átti í fullu fangi með að verja mark PSG en hann sá meðal annars við Ousmane Dembele og Sergio Dest í góðum færum.

Það voru hins vegar heimamenn sem komust yfir. Þeir fengu vítaspyrnu á 29. mínútu eftir að Clement Lenglet braut á Mauro Icardi. Kylian Mbappe steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Lionel Messi var ekki lengi að jafna. Einungis sjö mínútum síðar jafnaði Argentínumaðurinn og það ekki með neinu smá marki. Hann þrumaði boltanum fyrir utan teig og óverjandi fyrir Navas.

Barcelona fékk svo gott tækifæri til að gera einvígið ansi spennandi í uppbótartíma fyrri hálfleiks er þeir fengu vítaspyrnu. Brotið var á Antoine Griezmann en Keylor Navas varði vítaspyrnu Lionel Messi.

Börsungar réðu áfram ferðinni í síðari hálfleik og fengu nokkur álitleg færi. Allt kom fyrir ekki og lokatölur 1-1. PSG því komið áfram eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum á Nou Camp.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira