Messi skaut Barcelona upp fyrir Real Madrid

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Markaskorarar dagsins.
Markaskorarar dagsins. vísir/Getty

Barcelona vann mikilvægan sigur á Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Tveimur stigum munaði á liðunum í 3. og 4.sæti deildarinnar þegar kom að leik dagsins sem fram fór á heimavelli Sevilla.

Eftir hálftíma leik komust Börsungar yfir með marki Ousmane Dembele eftir undirbúning Lionel Messi.

Það var svo Messi sjálfur sem gulltryggði sigur gestanna með marki á 86.mínútu eftir skemmtilegt samspil við ungstirnið Ilaix Moriba.

Með sigrinum lyfta Börsungar sér upp í 2.sæti deildarinnar og hafa nú einu stigi meira en Real Madrid. Barcelona er tveimur stigum á eftir toppliði Atletico Madrid sem á þó tvo leiki til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira