Vöktun bóluefnis og mikil fjölgun starfsfólks framundan Rakel Sveinsdóttir skrifar 15. febrúar 2021 07:00 Gísli Herjólfsson. Vísir/Vilhelm „Hugmyndin að Controlant kviknaði í Háskóla Íslands sem hluti af meistaranámi okkar. Controlant varð til í H1N1 árið 2009, eða Svínaflensunni eins og hún er kölluð. Þá var okkar tækni notuð til þess að verja og stýra dreifingu og hýsingu á bóluefninu á Íslandi,“ segir Gísli Herjólfsson framkvæmdastjóri Controlant um upphafið en fyrirtækið var stofnað af fimm félögum, sem ýmist þekktust úr æsku eða kynntust í háskólanum.
Síðustu vikurnar hefur Controlant síðan ítrekað verið nefnt í fjölmiðlum því það sér um að vakta bóluefni fyrir Covid. Það er gert með hug- og vélbúnaði sem Controlant hefur þróað. Meðal þess sem vöktunarbúnaðurinn gerir er að mæla raka- og hitastig, ákvarða staðsetningu og senda frá sér upplýsingar sem hægt er að fylgjast með í rauntíma. Með þessu er betur hægt að gæði á viðkvæmum vörum, hvort sem er í flutningi og geymslu. „Við erum afskaplega stolt af okkar þætti í dreifingu á COVID-19 bóluefninu,” segir Gísli. Fyrirtækið Controlant er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem stofnað var árið 2009. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 150 manns. Á þessu ári er ætlunin að fjölga starfsfólki í 200. Mikilvægur hlekkur í heimsfaraldri Að sögn Gísla er markmið starfsemi Controlant að tryggja öryggi sjúklinga og þjónustu við neytendur með því að minnka lyfja- og matarsóun í aðfangakeðjunni um 90%. „Þegar svínaflensan kom var farið í að búa til bóluefni sem keypt voru til landsins og var fyrsta stóra verkefnið okkar í lyfjageiranum að vakta bóluefnin sem komu til landsins. Við náum samningi við sóttvarnalækni um vöktun á öllum bóluefnageymslum landsins. Það var fyrsta skrefið inn í lyfjageirann og við sáum strax að það væri mikil þörf fyrir tækni sem vaktar ástand og gæði lyfja,“ segir Gísli um upphafið. Á þessum tíma sá Controlant um vöktun og dreifingu á öllu H1N1 bóluefni fyrir Ísland. Í dag hafa umsvifin aukist mikið. Fyrir þrettán árum sáum við um vöktun og dreifingu á öllu H1N1 bóluefninu fyrir Ísland en núna í dag erum við að endurtaka leikinn með COVID-19 bóluefnið nema í þetta skiptið á heimsvísu.“ Flestir viðskiptavinir Controlant eru erlend fyrirtæki og því segir Gísli áhersluna mikla á starfsemina erlendis. Af um þrjú hundruð viðskiptavinum eru þó nokkur íslensk fyrirtæki sem starfa í lyfja- og matvælaiðnaði. „Um 90% af viðskiptavinum okkar eru hluti af stærstu 25 lyfjafyrirtækjum heims ásamt alþjóðlegum flutningsfyrirtækjum.“ Gísli segir áætlanir ársins 2021 byggja á að Controlant muni vakta um milljón sendingar. Stór hluti þeirra er vöktun á bóluefni fyrir Covid-19. „Við erum með samning við Pfizer um alþjóðadreifingu á bóluefni þeirra. Auk þessa þá vinnum með stórum lyfjakeðjum, flutningsaðilum og ríkisstjórnum að dreifingu bóluefnisins á alþjóðavísu. Þá sjáum við einnig um að vakta allt bóluefni sem kemur til Íslands,“ segir Gísli. Mikil fjölgun starfsfólks er framundan hjá Controlant. Fyrirtækið starfar í fimm löndum en flestir starfsmenn eru á Íslandi. Helstu áskoranir Stofnendur Controlant eru Gísli Herjólfsson, Stefán Karlsson, Erlingur Brynjúlfsson, Atli Þór Hannesson og Trausti Þórmundsson. Í dag er eignarhaldið nokkuð dreift en eigendur sem bæst hafa við í hluthafahóp eru nokkrir áhættufjármagnssjóðir, fagfjárfestar og einstaklingar. En hverjar hafa helstu áskoranirnar verið fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem á rétt rúmum áratug hefur náð að hasla sér völl á alþjóðavettvangi? „Helstu áskoranirnar til að byrja með voru almenn þróun á vörunni okkar ásamt því að finna rétta markaðinn sem hentaði best fyrir hana. Svo eftir að hafa náð góðri fótfestu á innlendri grundu þá var það stór áskorun að koma vörunni okkar á framfæri á alþjóðavísu,“ segir Gísli og bætir við: „Við þurftum að hafa mikið fyrir því að komast inn fyrir dyrnar hjá mörgum af stærstu lyfjafyrirtækjum heims.” Þá segir Gísli ýmsar áskoranir hafa komið upp í mannauðsmálum því starfsemin kalli á sérþekkingu starfsfólks sem erfitt hefur verið að sækja á Íslandi. Eins og áður segir, eru starfsmenn nú 150 talsins en Gísli segir áætlanir gera ráð fyrir að þeim muni fjölga um fimmtíu á þessu ári. Við erum með starfsfólk í fimm löndum en stærsti hluti okkar starfsfólks er á Íslandi. Á síðastliðnu ári höfum við aukið verulega við starfsemi okkar og þá sérstaklega á sviði rannsókna og þróunar til að styðja við alþjóðadreifingu á COVID-19 bóluefninu. Hluti af því var hröð þróun á hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausn okkar ásamt því að bæta greiningargetu innan Controlant lausnarinnar til muna.“ En vexti fylgja líka ýmsir vaxtaverkir og segir Gísli Controlant enga undantekningu á því. „Viðskiptavinum hefur fjölgað ört og umsvifum þeirra einnig. Því höfum við ráðið nýtt starfsfólk og þurft að þjálfa á skömmum tíma. Við leggjum þó mikla áherslu á að viðhalda okkar gildum og þeirri sterku fyrirtækjamenningu sem býr innan Controlant,“ segir Gísli.
Nýsköpun Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tækni Bólusetningar Tengdar fréttir „Algjörlega galið“ að hvatarnir séu þveröfugir við markmiðin „Kerfið er okkar helsta áskorun þar sem hvatar eru þveröfugir og hvetja enn til þess að plast og annað endurvinnanlegt efni er flutt óunnið úr landi eða urðað. Það er algjörlega galið þar sem það hefur verri áhrif á umhverfið til viðbótar við tækifærin, verðmætin og störfin sem skapast ef við byggjum virðiskeðjuna upp hér á Íslandi,“ segir Áslaug Hulda Jónsdóttir forstöðumaður viðskipta og þróunar hjá fyrirtækinu Pure North. 25. janúar 2021 07:01 Stefna á milljarð í veltu innan tveggja til þriggja ára „Við erum nú þegar starfandi í þremur löndum og að vera dreift fyrirtæki er okkar styrkur. Við erum í samtölum við sjúkrahús, tryggingafélög, lyfjafyrirtæki og aðrar stofnanir í mörgum heimsálfum og munum einblína á að byggja upp þekkingu til að geta veitt viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu,“ segir Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir framkvæmdastjóri RetinaRisk. 11. janúar 2021 07:01 „Hugmyndin kemur frá mér og Katrínu Tönju“ Alþjóðlega fyrirtækið STRAX var stofnað og er stjórnað af Íslendingum, er skráð hjá Nasdaq í Svíþjóð og hjá fyrirtækinu starfa um tvö hundruð manns. Fyrirtækið sérhæfir sig í dreifingu á aukahlutum fyrir farsíma en er um þessar mundir einnig í vöruþróun heyrnartóla undir vörumerkinu Dóttir. 14. desember 2020 07:52 Hægt að spara 13 milljarða á ári með nýjum lausnum Alvican er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa orðið til eftir bankahrun og þróað hefur nýjar lausnir í velferðatækni fyrir eldri borgara. 26. október 2020 07:00 Hringdu í fjárfesta í níu ár og velta nú milljarði Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks segir umhverfi fjármögnunar nokkuð vanþróað á Íslandi fyrir nýsköpun. Fyrirtækið veltir nú tæpum milljarði og gerir ráð fyrir miklum vexti næstu árin. 19. október 2020 07:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Atvinnulíf Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Viðskipti innlent Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Viðskipti innlent Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Viðskipti innlent Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Fleiri fréttir Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík „Einn mjög fárra karla á mínum aldri sem er ekki í golfi!“ Að vera bestur í teyminu er allt annað en að vera góður stjórnandi Kynslóðaskipti: Arftakaáætlunin virkjuð, vinnustaðaskóli og ný tækifæri fyrir starfsfólk 55-74 ára fjölgar hlutfallslega mest á vinnumarkaði „Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“ Algengt að starfsfólk læri ekki af mistökum Hjón í nýsköpun: „Það er reyndar hún sem er Þjóðverjinn en ég Íslendingurinn“ Vandræðalega kvöldsvæfur framkvæmdastjóri Öfund í vinnu og afbrýðisamir vinnufélagar Gæðasamtöl við dótturina, mömmu eða vinkonu á leið í vinnu Sex einkenni um að þú sért í miðaldrakrísu í vinnunni Plankavinir, kaka fyrir vinnufélaga, leika sér með börnum og hafa gaman Spennuþrungin sigling Mottumarssokkana til Íslands dæmi um hvað margt getur komið upp „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum Deilur og leiðindi við vinnufélaga og góð ráð Fögnum fjölbreytileikanum: Pólverjar flestir, síðan Litháar, síðan Íslendingar Eiga ekki bara að vera Íslendingar í betur launuðu störfunum „Menn trúðu því um tíma að hægt væri að semja við skrattann“ Nú er hægt að kúra og slappa af á morgnana „Karlarnir segja konur of reynslulausar“ Eðlilegt að starfsmenn og stjórnendur skipti um vinnu reglulega „Stjórnendur átta sig ekki alltaf á því að starfslýsing er ekki nóg“ „Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ „Það er fátt skemmtilegra en að taka einn Tene dag“ Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“ Sjá meira
„Algjörlega galið“ að hvatarnir séu þveröfugir við markmiðin „Kerfið er okkar helsta áskorun þar sem hvatar eru þveröfugir og hvetja enn til þess að plast og annað endurvinnanlegt efni er flutt óunnið úr landi eða urðað. Það er algjörlega galið þar sem það hefur verri áhrif á umhverfið til viðbótar við tækifærin, verðmætin og störfin sem skapast ef við byggjum virðiskeðjuna upp hér á Íslandi,“ segir Áslaug Hulda Jónsdóttir forstöðumaður viðskipta og þróunar hjá fyrirtækinu Pure North. 25. janúar 2021 07:01
Stefna á milljarð í veltu innan tveggja til þriggja ára „Við erum nú þegar starfandi í þremur löndum og að vera dreift fyrirtæki er okkar styrkur. Við erum í samtölum við sjúkrahús, tryggingafélög, lyfjafyrirtæki og aðrar stofnanir í mörgum heimsálfum og munum einblína á að byggja upp þekkingu til að geta veitt viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu,“ segir Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir framkvæmdastjóri RetinaRisk. 11. janúar 2021 07:01
„Hugmyndin kemur frá mér og Katrínu Tönju“ Alþjóðlega fyrirtækið STRAX var stofnað og er stjórnað af Íslendingum, er skráð hjá Nasdaq í Svíþjóð og hjá fyrirtækinu starfa um tvö hundruð manns. Fyrirtækið sérhæfir sig í dreifingu á aukahlutum fyrir farsíma en er um þessar mundir einnig í vöruþróun heyrnartóla undir vörumerkinu Dóttir. 14. desember 2020 07:52
Hægt að spara 13 milljarða á ári með nýjum lausnum Alvican er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa orðið til eftir bankahrun og þróað hefur nýjar lausnir í velferðatækni fyrir eldri borgara. 26. október 2020 07:00
Hringdu í fjárfesta í níu ár og velta nú milljarði Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks segir umhverfi fjármögnunar nokkuð vanþróað á Íslandi fyrir nýsköpun. Fyrirtækið veltir nú tæpum milljarði og gerir ráð fyrir miklum vexti næstu árin. 19. október 2020 07:01