Fyrsta rafræna þinglýsingin var framkvæmd í gær Eiður Þór Árnason skrifar 5. febrúar 2021 18:37 Skrifstofur Sýslumannsins í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Fyrsta rafræna þinglýsingin á Íslandi fór fram í gær og fólst í sjálfvirkri aflýsingu veðskjals í gegnum tölvukerfi banka. Löng bið hefur verið eftir rafrænum þinglýsingum hér á landi en lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í lok árs 2018.
Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir að frá gildistöku laganna hafi dómsmálaráðuneytið í samstarfi við sýslumannsembættin, Þjóðskrá Íslands, verkefnastofuna um stafrænt Ísland og helstu haghafa unnið að innleiðingu nýrrar framkvæmdar við þinglýsingar. Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, gaf út í janúar að rafrænar þinglýsingar yrðu að veruleika síðar á þessu ári. Feta Íslendingar þar meðal annars í fótspor Dana og Breta. Við samþykkt lagafrumvarps um rafrænar þinglýsingar árið 2018 sagði Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, að með breytingunum yrði ferlið „nánast sjálfkrafa þegar tölvukerfið verður komið í gagnið.“ Þá var haft eftir Bergþóru Sigmundsdóttur, sviðsstjóra hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, að með tilkomu rafrænna þinglýsinga yrði fullnægjandi skjölum þinglýst á sekúndubrotum. Fram að þessu hefur móttaka, þinglýsing, afgreiðsla, aflýsing og afhending þinglýstra skjala farið fram á skrifstofu embættis sýslumanns.
Tækni Stjórnsýsla Stafræn þróun Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira