Viðskipti innlent

„Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristján Markús Sívarsson og Birta Lind Hallgrímsdóttir standa saman að veðlánastarfseminni.
Kristján Markús Sívarsson og Birta Lind Hallgrímsdóttir standa saman að veðlánastarfseminni. Vísir/Vilhelm

Kristján Markús Sívarsson segir alla eiga skilið annað tækifæri. Hann segir veðlánastarfsemi sem hann býður upp á ásamt kærustu sinni vera hugmynd sem hann hafi gengið með í maganum í nokkurn tíma. Hann hafi hins vegar ekki verið í standi til að framkvæma það fyrr en núna.

„Ég er búinn að vera lengi með þessa hugmynd því þetta hefur vantað lengi á Íslandi,“ segir Kristján þegar blaðamaður slær á þráðinn.

„Ég hef bara ekki verið maður til að framkvæma þetta fyrr en núna. Ég hef átt erfitt í gegnum tíðina eins og þið vitið sem hafið lesið um mig,“ segir Kristján. Hann sé þó ekki einn í rekstrinum því Birta Lind Hallgrímsdóttir, kærasta hans, sé hans öflugasti stuðningsmaður.

Segist alltaf hafa verið úrræðagóður

Veðlánastarfsemi gengur í grunninn út á að maður mætir með verðmæti í verslun og viðkomandi býður þér pening fyrir hlutinn.

„Ég get látið fólk fá peninga og rukkað aukalega án þess að vera brotlegur við lög,“ segir Kristján Markús í samtali við Vísi.

Fram kom í Fréttablaðinu á dögunum að vextirnir yrðu allt að fimmtíu prósent. 

„Fólk getur ráðið hvort það fái lánað eða bara selji mér hlutina,“ segir Kristján sem leitar þessa dagana að lítilli skrifstofuaðstöðu fyrir starfsemina. Hann hefur tekið á leigu rými hjá Geymslur.is.

Kristján Markús og Birta Lind svara í símann hjá Pawnshop.is.Vísir/Vilhelm

„Ég hef alltaf verið frekar úrræðagóður. Nú er búið að banna öll okurlán á Íslandi og tæknilega séð ætti þetta að vera ólöglegt. En ég er búinn að finna leið til að gera þetta löglega,“ segir Kristján en vill ekki fara nánar út í lausnina.

„Fólk verður bara að koma til mín til að sjá nákvæmlega hvernig ég geri þetta,“ segir Kristján og fagnar því að sitja einn að veðlánabransanum.

Ekkert sérstakt eftirlit með veðlánastarfsemi

Fréttastofa hafði samband við Neytendastofu og spurðist fyrir um veðlánastarfsemi. Þar fengust þau svör að Neytendastofa hafi ekki sérstakt eftirlit með starfseminni en hún falli undir almennt eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu líkt og öll önnur fyrirtæki sem selja vörur og þjónustu.

Stofnunin fari ekki með eftirlit samkvæmt lögum um samningsveð.

Að sögn Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakana sem staðið hafa í harðri baráttu við smálánafyrirtæki undanfarin ár, hafa samtökin ekki fengið neinar ábendingar sem varða veðlánaverslanir og því ekki haft starfsemi þeirra til skoðunar.

Segist taka við hverju sem er

Kristján hefur komið upp heimasíðunni Pawnshop.is þar sem er að finna símanúmer sem fólk getur hringt í til að bjóða hluti til sölu.

Pawnshops, eða veðmangarar, eru vel þekktir víða um heim. Þeir hafa tekjur af því að annaðhvort lána fólki gegn vörslu hluta í eigu þess eða að kaupa hlutina og selja þá á hærra verði.

„Já já, við erum byrjuð - erum á fullu. Fólk er að versla við okkur alveg á milljón,“ segir Kristján. Fólk sé aðallega að koma með símana sína en hann leggur áherslu á að hann taki við hverju sem er.

„Sjónvarp, gítar eða bara hvað sem er. Og hringana. Ég kaupi allt gull.“

Þýfi yrði tilkynnt til lögreglu

Viðbúið er að þjófar myndu vilja nýta sér starfsemi Kristjáns til að koma þýfi í verð. Kristján segist hafa hugsað fyrir því.

„Þegar fólk kemur með hluti til mín tek ég niður nafn og kennitölu. Ég læt það skrifa undir hvaða hlut það kemur með. Ef það kemur í ljós að þetta er þýfi mun það þurfa að taka ábyrgð á því. Allt svoleiðis verður tilkynnt til lögreglu.“

Kristján og Birta Lind eru spennt fyrir komandi starfsemi.Vísir/Vilhelm

„Þetta verður bara heiðarlegur business, ég nenni engu kjaftæði. Fólk kemur bara inn, fær pening, græjar hlutina og borgar svo aftur um mánaðamótin.“

Vissulega framið ljóta glæpi

Vafalítið velta margir fyrir sér hvort Kristjáni, með sína sögu af ofbeldisbrotum í gegnum tíðina sé treystandi. Þeir bræður Stefán Logi hafa endurtekið komist í kast við lögin. Kristján svarar slíkum pælingum að bragði.

„Það er voðalega leiðinlegt ef fólk er hrætt við mig, titlar mig illmenni. Ég hef vissulega framið ljóta glæpi sem maður þyrfti að vera illmenni til að framkvæma. En ég hef verið í mikilli neyslu og rugli,“ segir Kristján.

„Þetta hefur aldrei verið fólk sem hefur komið saklaust inn í líf mitt,“ segir Kristján. Barnaníðingur og maður sem braust inn til mömmu hans hafi fengið að kenna á því.

„En ég hef ekki brotið á saklausu fólki. Ég hef aldrei lamið neinn fyrir peninga, eða hækkað skuld við neinn. Þeir sem þekkja mig vita það.“

Nýlegur dómur í hryllilegu máli

Kristján fékk í fyrra dóm fyrir að hafa brotið gegn lífi og líkama barnsmóður sinnar með því að koma henni ekki undir læknishendur er hún veiktist lífshættulega vegna kókaíneitrunar. Málinu var áfrýjað þar sem héraðssaksóknara taldi dóminn of vægan og er það á borði ríkissaksóknara.

Kristján segir það hafa verið hryllilegt mál sem hafi þó orðið til þess að hann þurfti að manna sig upp til að vera til staðar fyrir börnin sín.

„Þeir vildu meina að ég hefði verið of lengi,“ segir Kristján ósáttur við störf lögreglu í málinu. Hann hafi verið á skilorði og því ekki mátt vera í neyslu. Með því að hringja, sem hann segist þó hafa gert, hafi hann verið að viðurkenna skilorðsbrot.

Kristján segist ekki hafa verið í neyslu í nokkurn tíma núna. Sjálfur hefði hann þegið að geta leitað til veðmangara á sínum tíma.

„Það hefði verið rosalega gott ef ég hefði getað fengið lán og bjargað mér út úr vandræðum,“ segir Kristján.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×