Tókst að fá samband við Trump um borð í Air Force One með því að þykjast vera Piers Morgan Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. janúar 2021 14:07 Trump og Morgan kom ágætlega saman í eina tíð en á lokum gekk forsetinn fyrrverandi fram af sjónvarpsmanninum. Óprúttnum aðilum tókst að fá samband við Donald Trump, þáverandi forseta Bandaríkjanna, í október síðastliðnum með því að þykjast vera sjónvarpsmaðurinn umdeildi Piers Morgan.
Forsetinn var um borð í forsetaflugvélinni Air Force One þegar símtalið átti sér stað. Það var Morgan sem greindi frá atvikinu í viðtali við hlaðvarp BBC America en svikin komust ekki upp fyrr en að Trump hafði samband við Morgan daginn eftir hrekkinn. Ekki er vitað hver það var sem gabbaði Trump og þá liggur ekki fyrir hvernig viðkomandi tókst að komast í kringum þær öryggisráðstafanir sem eiga að vera til staðar til að hver sem er geti ekki náð í forsetann. „Þeir áttu samtal, þar sem Trump hélt hann væri að tala við mig,“ sagði Morgan við Jon Sopel hjá BBC. Miðillinn hefur sent inn fyrirspurn til stjórnvalda vegna málsins. Morgan er frægur fyrir umdeildar skoðanir og athugasemdir. Hann var eitt sinn ritstjóri News of the World og stjórnaði síðar þættinum Piers Morgan Live á CNN en er nú annar stjórnenda morgunþáttarins Good Morning Britain. Hann var dyggur stuðningsmaður Donald Trump í eina tíð en síðarnefndi virtist ganga fram af honum undir lok kjörtímabils síns. Sagði Morgan meðal annars um Trump að sjálfselska hans og þrá til að láta allt snúast um sjálfan sig gerðu hann að „gagnslausum leiðtoga“. „Mér leið bara.. nei, nú er ég kominn með nóg af þér,“ sagði hann um vinaslit sín og Trump.
Donald Trump Bandaríkin Fjölmiðlar Mest lesið Enok sakfelldur Innlent Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Innlent Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Innlent Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Innlent „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Innlent Allt önnur spá í kortunum Innlent Fara í saumana á sendiherraskipunum Innlent Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Innlent Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Innlent Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent Fleiri fréttir Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Bóluefni gegn flensu og Covid-19 langt á veg komið Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Mánaðarverkfalli í Færeyjum lýkur Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD Öfgahægrið sækir í sig veðrið en miðjan heldur Sjá meira