Heimsmarkmiðin

Skólar loka í Malaví – 25% COVID-19 sýna jákvæð

Heimsljós
Skólar loka í Malaví. 
Skólar loka í Malaví.  gunnisal

Lazarus Chakwera forseti Malaví tilkynnti um lokun skóla í ávarpi til þjóðarinnar í gær til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar.

Ekkert skólastarf fer fram í Malaví um ótilgreindan tíma eftir að Lazarus Chakwera forseti tilkynnti um lokun skóla í ávarpi til þjóðarinnar í gær til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar. Nemendur heimavistarskóla fá ekki að fara til síns heima fyrr en ljóst er að þeir séu ósýktir. Neyðarástandi var lýst yfir í síðustu viku í Malaví eftir að 25 prósent allra COVID-19 sýna greindust jákvæð og þjóðarsorg var í landinu í þrjá daga eftir fráfall tveggja ráðherra af völdum farsóttarinnar.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sendi í gær, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar, samúðarkveðjur til forseta Malaví vegna fráfalls ráðherranna.

Inga Dóra Pétursdóttir forstöðumaður íslenska sendiráðsins í Lilongwe segir að veldisvöxtur hafi orðið í COVID-19 smitum frá ársbyrjun. „Örfá smit greindust daglega fyrir jól en tæplega 600 á fimmtudag í síðustu viku. Af 1500 sýnatökum í þeirri viku var fjórðungur allra sýna jákvæður en mánuði áður aðeins eitt prósent. Það er talið að um sé að ræða suður afrískt afbrigði veirunnar,“ segir hún.

Að sögn Ingu Dóru er þessi önnur bylgja faraldursins þungt högg fyrir Malaví, heilsufarslega, efnahagslega og samfélagslega. Hún segir að alþjóðasamfélagið þurfi að bregðast við af krafti á næstu vikum og mánuðum við að aðstoða malavísk stjórnvöld. Íslensk stjórnvöld lögðu á síðasta ári fram tæpar hundrað milljónir króna í baráttuna gegn faraldrinum í Malaví. Þar af var 45 milljónum króna veitt til að styrkja COVID-19-viðbragðsáætlun Mangochi-héraðs í heilbrigðis- og menntamálum.

Hröð og myndarleg viðbrögð Íslands vöktu athygli og nýttust í samhæfingu, þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og kaup á heilbrigðisvörum. Þá var 27 milljónum króna veitt til Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women), með áherslu á að draga úr áhrifum faraldursins á stúlkur, til dæmis í baráttu gegn barnahjónaböndum. Að lokum fóru 27 milljónir króna til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP).

„Heilbrigðiskerfið er komið að þolmörkum,“ segir Inga Dóra. „Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur þegar reist tjöld við yfirfull sjúkrahús landsins. Verið er að undirbúa móttöku COVID-19 veikra á stærsta knattspyrnuvelli landsins. Enn sem komið er er til nóg af súrefni og hlífðarbúnaði en gríðarleg þörf er fyrir fleira heilbrigðisstarfsfólk til að sinna veikum, fleiri COVID-19 próf, upplýsingagjöf til samfélaga og aukið eftirlit. Heilbrigðisyfirvöld lýstu því yfir að blóðbankar væru tómir í landinu og yfirvofandi kólerufaraldur veldur einnig miklum áhyggjum,“ segir hún.

Lokun skóla er umdeild og Inga Dóra segir að menntamálaráðherra hafi ekki viljað loka skólum eftir reynslu síðasta árs þegar gríðarleg aukning varð á barnahjónaböndum, ótímabærum þungunum unglingsstúlkna og aukningu á ofbeldi gegn börnum.

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna og flest sendiráð í Lilongwe hafa lokað tímabundið og flest starfsfólk vinnur að heiman, meðal annars starfsfólk sendiráðs Íslands.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×