Makamál

Spurning vikunnar: Finnur þú fyrir pressu að eignast maka?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Getur verið að nútímasamfélag kunni betur við okkur þegar við komum í tvennupakkningu?
Getur verið að nútímasamfélag kunni betur við okkur þegar við komum í tvennupakkningu? Getty

„Ertu bara ein? Ætlar þú að mæta bara einn? Ertu ekki skotin í neinum? Þetta fer alveg að koma, núna finnur þú ástina.“ Þeir sem eru, eða hafa verið, einhleypir kannast margir við þessar línur. Stundum óþægilega vel. 

Einhleypt fólk hefur stundum haft það á orði að það upplifi eins og samfélagið sjái það í einhverskonar tímabundnu ástandi því það eigi ekki maka. Upplifi eins og það eigi að vera í stöðugri leit. Leit að hinum helmingnum. Leit að ástinni. 

Það er eðlilega misjafnt hvort að fólk finni fyrir pressu að byrja í sambandi eða ekki. Yngra fólk finnur ábyggilega ekki eins mikið fyrir því og eldra. En ætli það sé munur þarna á kynjunum?

Út frá þessum hugleiðingum kemur Spurning vikunnar sem er að þessu sinni kynjaskipt og er beint til fólks sem er ekki í sambandi. 

Finnur þú fyrir pressu að eignast maka?

KONUR SVARA HÉR: 

KARLAR SVARA HÉR:


Tengdar fréttir

Íslenskir karlmenn um bóndadaginn: Vilja góðan mat og „trít í svefnherberginu“

Bóndagurinn, fyrsti dagur Þorra, er þennan föstudag. Dagurinn þar sem hefð er fyrir því að gleðja og dekra við bóndann á heimilinu. Við getum öll verið óörugg þegar kemur að því að skipuleggja eitthvað fyrir maka okkar. Hvað er of mikið og hvað er of lítið? Hvað er það sem gleður hann mest á bóndadaginn?  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×