Innlent

Bein út­sending: Vísinda­rann­sóknir á tímum heims­far­aldurs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Henry Alexander Henrysson heimspekingur er meðal þeirra sem taka til máls í dag.
Henry Alexander Henrysson heimspekingur er meðal þeirra sem taka til máls í dag. Vísir/Vilhelm

Vísindasiðanefnd boðar til opins málþings um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði á tímum Covid-19.

Markmiðið er að leiða saman fulltrúa rannsóknasamfélagsins, heilbrigðisyfirvalda og eftirlitsaðila til að ræða þá möguleika og þær áskoranir sem felast í rannsóknum meðan á faraldri stendur. Til dæmis hafa vaknað spurningar um hvort núverandi regluumhverfi henti fyrir slíkar aðstæður og hvernig hagsmunum þátttakenda er best borgið.

Þátttakendur á málþinginu munu flytja framsöguerindi um reynslu síðustu mánaða og koma saman í pallborði. Streymt verður frá fundinum og má nálgast streymið hér að neðan.

Fundurinn hefst klukkan 13 og stendur til 16.

Dagskrá

13.05 Ávarp, Sunna Snædal, læknir og formaður vísindasiðanefndar

13.15 Alma D. Möller, landlæknir

13.30 Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

13.45 Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar

14.00 Karl Andersen, hjartalæknir og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

14.15 Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor við miðstöð í lýðheilsuvísindum, Læknadeild Háskóla Íslands

14.30 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

14.45 Henry A. Henrysson, heimspekingur og varaformaður vísindasiðanefndar bregst við framsöguerindum og stjórnar pallborði

15.00-16.00 Pallborðsumræða




Fleiri fréttir

Sjá meira


×