Virðist sem svo að Parler hafi í millitíðinni ekki fundið annað fyrirtæki til að hýsa samfélagsmiðilinn. Síðunni var úthýst eftir að mikla fjölgunar færslna þar sem hvatt var til ofbeldis.
Parler hefur gefið sig út fyrir að vera miðill tjáningar- og málfrelsis þar sem „alvöru skoðanaskipti“ fara fram. Hefur mikið verið fjallað um að margir stuðningsmenn Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, sem aðhyllast QAnon samsæriskenninguna, hafi notast við Parler. Samkvæmt kenningunni er djúpríki í Bandaríkjunum sem starfar gegn Trump og starfrækir net djöfladýrkandi barnaníðinga sem stjórni heiminum á bakvið tjöldin.
Margir sem hafa verið bannaðir á Twitter vegna hatursorðræðu hafa því snúið sér að Parler, sem nýtur mikilla vinsælda meðal fólks á hægri væng stjórnmálanna.
Á meðal vinsælla notenda Parler er þingmaðurinn Ted Cruz, sem er með 4,9 milljónir fylgjenda þar, sem og Sean Hannity, sjónvarpsmaður á Fox, sem er með sjö milljónir fylgjenda.
Um helgina var Parler fjarlægt bæði út af appverslunum Apple og Google.