Makamál

Íslendingar í skýjunum með jólagjöfina frá makanum

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Rúmlega fimm þúsund manns tóku þátt í síðustu könnun Makamála sem birt var á Jóladag. Spurt var um jólagjöfina frá makanum. 
Rúmlega fimm þúsund manns tóku þátt í síðustu könnun Makamála sem birt var á Jóladag. Spurt var um jólagjöfina frá makanum.  Getty

Síðasta Spurning vikunnar árið 2020 var birt á Jóladag. Spurningunni var beint til fólks sem er í sambandi og var spurt um hina einu sönnu jólagjöf, gjöfina frá makanum. 

Öll erum við misjöfn og með ólíkar væntingar og hugmyndir um gjafir. Sum pör hafa gert með sér ákveðið samkomulag varðandi jólagjafir til hvors annars til að forðast vonbrigði og flækjustig við val á gjöfum. Það getur verið stressandi að velja jólagjöf fyrir ástina sína og óska þess allir að gjöfin hitti í mark. 

Alls tóku rúmlega fimm þúsund manns þátt í könnuninni og samkvæmt niðurstöðunum segjast flestir vera í skýjunum með jólagjöfina frá makanum þetta árið, eða 73%. Um 10% sögðust hafa valið gjöfina sína sjálfir og 13% sögðust annað hvort ekki hafa fengið gjöf eða að gjöfin hafi ekki hitt í mark. 

Hitti makinn þinn í mark með jólagjöfinni í ár? 

*Niðurstöður

Já, sló í gegn - 73%

Já, ég valdi gjöfina - 10%

Við keyptum okkur sameiginlega gjöf - 4%

Nei, en það er alltaf næsta ár - 7%

Ég fékk ekki gjöf frá makanum - 6%

Umsjónarmaður Makamála mætti í Brennsluna á FM957 og ræddi niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja Spurningu vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Spurning vikunnar: Hvað verður um hringinn ef trúlofun er slitið?

Trúlofun er skilgreind sem tímabilið frá því að bónorð er borið upp og fram að giftingu. Það að trúlofast er því bæði játning á ást og gagnkvæmt loforð um að bindast hvoru öðru í hjónaband. Hér áður fyrr var hefð fyrir því að þetta tímabil frá trúlofun væri ekki lengur en eitt ár en í dag er það allavega. 

Spurningar ársins: Fyrirgefning, framhjáhald, forvitni og fjölástir

Makamál er svæði á Vísi þar sem fjallað er um allt undir hattinum ástin og lífið. Sambönd, meðgöngur, fæðingar, fjölskyldumál, sambandsform, tilfinningar, ást og kynlíf. Meðfram umfjöllunum og viðtölum höfum við vikulega spurt lesendur Vísis um tengd málefni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×