Atvinnulíf

Dæmi um persónuleg markmið í vinnunni 2021

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hvaða markmið viltu setja þér í starfi fyrir árið 2021?
Hvaða markmið viltu setja þér í starfi fyrir árið 2021? Vísir/Vilhelm

Um áramótin setjum við okkur oft alls kyns markmið fyrir nýtt ár, ekki síst á sviði hreyfingu og hollustu. En það getur líka verið gott að setja sér persónuleg markmið fyrir vinnuna og hér eru dæmi um hvernig slík markmiðasetning gæti litið út.

Áður en farið er af stað er gott að hafa til hliðsjónar eftirfarandi fjögur atriði:

  • Framtíðarsýnin, þ.e. sjáðu fyrir þér hvaða markmiðum þú ætlar að ná. Þessi markmið geta snúið að þér persónulega eða hæfni, reynslu, þekkingu eða getu.
  • Vertu með hugmyndir um það hvernig þú ætlar þér að ná þessum markmiðum (aðgerðaráætlun).
  • Mótaðu þér hugmyndir um það hvernig þú getur fylgst með því hvernig þér gengur að ná settum markmiðum. Hvaða mælikvarða getur þú notað, hvernig og hvenær.
  • Endurskoðun, endurgjöf. Markmiðasetningu er gott að endurskoða reglulega. Er hún raunhæf í tímaáætlun? Er ávinningurinn í takt við upphafleg áform?

Þegar þú ert búin að móta þér hugmyndir um hver markmiðin eru, er ágætt að máta þau við SMART-regluna, þ.e. að markmiðin séu:

S = Skýr

M = Mælanleg

A = Aðlaðandi, þ.e. þú verður að geta náð þeim

R = Raunhæf, þ.e. það má ekki taka of langan tíma að ná þeim

Markmið sem þú getur sett þér í starfi fyrir árið 2021 geta snúið að þér persónulega eða hæfni, reynslu, þekkingu eða getu.Vísir/Getty

Dæmi um markmið

Markmið fyrir vinnuna geta verið jafn ólík og við erum mörg. Sum þeirra snúa kannski að markmiðum þar sem við sjálf sem manneskjur ætlum að bæta okkur í einhverju, t.d. að verða betri hlustendur. Önnur markmið eru kannski verkefna- og vinnutengd og praktísk í eðli sínu.

En til að gefa hugmyndir að því hvernig markmiðalisti gæti litið út fyrir vinnuna 2021 eru hér dæmi.

  • Að bæta mig í tímastjórnun 
  • Að auka á jafnvægi heimilis og vinnu
  • Að bæta samskiptahæfnina mína enn frekar
  • Að efla þrautseigju og seiglu (hugsa í lausnum, halda í bjartsýnina, ekki gefast upp o.s.frv.)
  • Að verða betri hlustandi
  • Að læra með lestri, þ.e. setja sér markmið um að lesa meira efni sem þú getur lært af (gæti verið tengt faginu þínu, stjórnun o.s.frv.)
  • Að læra eitthvað nýtt í vinnunni, t.d. í hverjum mánuði eða reglulega yfir árið
  • Að læra að koma fram, halda ræður eða kynningar eða tjá þig á fundum eða í fjölmiðlum
  • Að efla tengslanetið, að kynnast nýju fólki

Tengdar fréttir

Starfsframinn: Að vinna eins og forstjóri

Það er oft sagt að vinnuveitendur falist sérstaklega eftir starfsfólki sem kann að sýna gott frumkvæði í starfi. Enda ekki nema von. Starfsmaður sem sýnir dugnað, afkastagetu og frumkvæði er oftast starfsmaður sem stjórnandi þarf lítið að hafa áhyggjur eða afskipti af. Sem aftur gerir viðkomandi að eftirsóttum starfsmanni. Og hver vill ekki teljast eftirsóttur starfsmaður?

Stjórnun 2021: „Þetta reddast“ hefur fengið nýja merkingu

Í könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Atvinnulífið á Vísi má sjá að 75 prósent þeirra sem starfa í fjarvinnu myndu kjósa að vinna heiman frá sér í tvo til þrjá daga í viku. Ýmsir spá því að fjarvinna í bland við vinnu á staðnum verði framtíðarfyrirkomulag sem mörg fyrirtæki munu taka upp í kjölfar Covid. En að hverju þurfa stjórnendur að huga að ef þetta verður þróunin?

Að komast á rétt ról (á ný) með tímastjórnun

Þótt unnið sé heiman frá þarf að huga að ýmsum atriðum eins og að forðast kulnun, að gera verkefnalista, að hafa stjórn á truflun og fleira. Hér eru nokkur einföld ráð til að ná tökum á tímastjórnun í fjarvinnu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×