Hefur efnt öll loforðin 30. júní 2011 14:27
Í byrjun febrúar kynnti Landsbankinn aðgerðalista með 28 loforðum með það að markmiði að innleiða nýja stefnu bankans sem ber yfirskriftina "Landsbankinn þinn". Landsbankinn hefur nú efnt öll loforðin 28 á aðgerðarlista sínum á tilsettum tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Bankinn hefur sett sér fjölmörg áfangamarkmið við innleiðingu á stefnu bankans. Aðgerðalistinn er eitt slíkt markmið en hann var byggður á sex meginliðum sem koma átti til framkvæmda fyrir 1.júlí. Lagt var upp með það að starfsmenn Landsbankans undirrituðu siðasáttmála, að tekist yrði á við skuldavanda heimila og fyrirtækja, að þjónusta bankans yrði bætt, að bankinn leitaðist við að vera hreyfiafl í samfélaginu og að rækta samfélagslegt og siðferðislegt hlutverk sitt.Frá þeim tíma sem aðgerðalistinn var birtur hafa stjórnendur og sérfræðingar Landsbankans fundað um land allt og hitt viðskiptavini, einstaklinga, fulltrúa fyrirtækja, fulltrúa sveitafélaga og atvinnulífs. Um 3500 manns hafa sótt fundina. Landsbankinn hefur kynnt ný úrræði fyrir skuldsett heimili og fyrirtæki og hefur þar með gengið lengra en önnur fjármálafyrirtæki við að greiða úr þeim málum. Allir starfsmenn Landsbankans hafa skrifað undir siðasáttmála. Bankinn hefur jafnframt sett fram nýja stefnu um samfélagslega ábyrgð. Bankinn hefur einnig birt opinberlega stjórnhætti sína og jafnað kynjahlutföll í stjórnum dótturfélaga bankans. Landsbankinn hefur birt gagnsæja og umhverfisvæna stefnu um samskipti við birgja og kynnt stefnu um sölu fullnustueigna bankans. Síðast í gær kynnti Landsbankinn um skráningu á tveimur félögum, Reginn ehf. og Horn fjárfestingafélag hf., í eigu bankans á markað, svo aðeins fáein dæmi séu nefnd.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira