Maðurinn sem Clippers-liðið getur ekki verið án frá í 6 til 8 vikur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2017 22:45
Chris Paul, leikstjórnandi Los Anegeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta, fer í aðgerð á þumalputta í dag og verður frá keppni næstu vikurnar. Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir Los Angeles Clippers sem þarf nú að vera án síns mikilvægasta leikmanns í sex til átta vikur. ESPN segir meðal annars frá. Chris Paul meiddist við það að reyna að elta Russell Westbrook í leik á móti Oklahoma City Thunder. Hann teygði á liðbandi í vinstri þumalputta við það reyna að komast framhjá hindrun Joffrey Lauvergne hjá Thunder. Clippers liðið treystir mikið á Chris Paul. Liðið er að skora tuttugu fleiri stig á hverjar hundrað sóknir þegar Paul er inná vellinum. Með Chris Paul er Los Angeles Clippers búið að vinna 79 af 114 leikjum sínum undanfarin tvö tímabil (69 prósent sigurhlutfall) en aðeins 5 af 17 leikjum án hans (29 prósent sigurhlutfall). Chris Paul er með 17,7 stig, 9,8 stoðsendingar og 5,3 fráköst að meðaltali í leik á þessu tímabili og þá hefur enginn leikmaður í deildinni stolið fleiri boltum (2,25 að meðaltali í leik). Paul er með sjötta besta framlagið í NBA-deildinni í vetur (27,5 í leik). Clippers liðið er líka án stórstjörnunnar Blake Griffin sem hefur misst af síðustu þrettán leikjum liðsins eftir aðgerð á hné.
NBA Mest lesið Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Sjá meira