Hvað er félagsmiðstöð? 2. nóvember 2011 06:00 Í flestum sveitarfélögum landsins er að finna félagsmiðstöð sem heldur úti félagsstarfi fyrir börn og unglinga. Þó að almennt þyki sjálfsagt að halda úti félagsmiðstöð í hverju bæjarfélagi þá ber oft ekki mikið á því starfi sem fer þar fram og vitneskja almennings um starfið og eðli þess oft af skornum skammti. Innan veggja félagsmiðstöðva út um allt land má finna fjölbreytt og blómlegt starf sem stuðlar að auknum félagsþroska hjá því unga fólki sem erfa mun þetta land. Helstu markmið félagsmiðstöðva almennt eru að auka félags- og lýðræðisþátttöku ungs fólks, sinna forvörnum og veita börnum og unglingum stuðning og tækifæri til að sinna hugðarefnum sínum ásamt margvíslegum öðrum undirmarkmiðum. Helsti markhópur félagsmiðstöðva landsins eru unglingar á aldrinum 13-16 ára en þó sinna félagsmiðstöðvar oft bæði yngri börnum og eldri ungmennum. Í félagsmiðstöðvum eru þó ekki bara unglingar því að þar er einnig að finna fjölda hæfileikaríkra starfsmanna. Fagþekking þess mannauðs sem vinnur í dag í félagsmiðstöðvum hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og síðustu rannsóknir í þessum málaflokki sýna að félagsmiðstöðvastarf á Íslandi er í fararbroddi í Evrópu. Það er jafnframt von um að fagþekking sem og fagmennska í starfi félagsmiðstöðva muni aukast enn frekar á næstu árum því félags- og tómstundafræði er orðin vinsæl námsbraut við Háskóla Íslands. Í dag, miðvikudaginn 2. nóvember, munu félagsmiðstöðvar landsins opna dyr sínar fyrir foreldrum, öðrum aðstandendum unglinganna og almenningi og kynna það starf sem fer þar fram. Unglingar og starfsfólk munu taka höndum saman og svara spurningum gesta og gangandi, sýna þá aðstöðu sem er fyrir hendi í félagsmiðstöðvunum og gefa gestum innsýn í viðfangsefni í starfinu. Fyrir hönd barna, unglinga og starfsfólks félagsmiðstöðva á Íslandi hvet ég þig til að nýta þér einstakt tækifæri og líta í heimsókn í félagsmiðstöð í kvöld. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Í flestum sveitarfélögum landsins er að finna félagsmiðstöð sem heldur úti félagsstarfi fyrir börn og unglinga. Þó að almennt þyki sjálfsagt að halda úti félagsmiðstöð í hverju bæjarfélagi þá ber oft ekki mikið á því starfi sem fer þar fram og vitneskja almennings um starfið og eðli þess oft af skornum skammti. Innan veggja félagsmiðstöðva út um allt land má finna fjölbreytt og blómlegt starf sem stuðlar að auknum félagsþroska hjá því unga fólki sem erfa mun þetta land. Helstu markmið félagsmiðstöðva almennt eru að auka félags- og lýðræðisþátttöku ungs fólks, sinna forvörnum og veita börnum og unglingum stuðning og tækifæri til að sinna hugðarefnum sínum ásamt margvíslegum öðrum undirmarkmiðum. Helsti markhópur félagsmiðstöðva landsins eru unglingar á aldrinum 13-16 ára en þó sinna félagsmiðstöðvar oft bæði yngri börnum og eldri ungmennum. Í félagsmiðstöðvum eru þó ekki bara unglingar því að þar er einnig að finna fjölda hæfileikaríkra starfsmanna. Fagþekking þess mannauðs sem vinnur í dag í félagsmiðstöðvum hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og síðustu rannsóknir í þessum málaflokki sýna að félagsmiðstöðvastarf á Íslandi er í fararbroddi í Evrópu. Það er jafnframt von um að fagþekking sem og fagmennska í starfi félagsmiðstöðva muni aukast enn frekar á næstu árum því félags- og tómstundafræði er orðin vinsæl námsbraut við Háskóla Íslands. Í dag, miðvikudaginn 2. nóvember, munu félagsmiðstöðvar landsins opna dyr sínar fyrir foreldrum, öðrum aðstandendum unglinganna og almenningi og kynna það starf sem fer þar fram. Unglingar og starfsfólk munu taka höndum saman og svara spurningum gesta og gangandi, sýna þá aðstöðu sem er fyrir hendi í félagsmiðstöðvunum og gefa gestum innsýn í viðfangsefni í starfinu. Fyrir hönd barna, unglinga og starfsfólks félagsmiðstöðva á Íslandi hvet ég þig til að nýta þér einstakt tækifæri og líta í heimsókn í félagsmiðstöð í kvöld.
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun