Nýsköpunarsjóðurinn fjárfestir í Mint Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. apríl 2011 17:32 Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur keypt hlut í Mint solutions.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins ásamt sprotafjárfestum, þar á meðal fjárfestingafélaginu Investa, hafa gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu Mint Solutions ehf. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í gerð lausna til lyfjaeftirlits á sjúkrastofnunum og hefja markaðssetningu erlendis. Í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarsjóðnum segir að fyrirtækið Mint Solutions hafi hannað MedEye lausnina sem auðveldi sjúkrastofnunum að hafa eftirlit með lyfjagjöfum. Mistök við lyfjagjöf séu alvarlegt vandamál sem allar sjúkrastofnanir glími við og kosti fjölda mannslífa á ári hverju. MedEye skannar lyf myndrænt og greinir lyfjategundir til að koma í veg fyrir mistök. MedEye eykur öryggi við lyfjagjöf verulega og er einstakt í sinni röð. Sótt hefur verið um einkaleyfi á lausninni. „Við hjá Nýsköpunarsjóði erum mjög ánægð með fjárfestinguna í Mint Solutions og höfum trú á því að stofnendum félagsins takist að koma þessari lausn inn á markað í Evrópu og Bandaríkjunum," segir Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Hún segir að fjárfest hafi verið í Mint solutions þar sem Nýsköpunarsjóðurinn hafi séð gott teymi sem hafði bæði góða tækniþekkingu og mikla markaðsreynslu. Varan sé tímabær og fjárfestingar í íslenskri heilbrigðistækni geti verið mjög arðbærar ef rétt er haldið á spilunum.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Fleiri fréttir Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Sjá meira