43 fá uppsagnarbréf hjá Landsbankanum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2015 12:56 Kristján Kristjánsson er upplýsingafulltrúi Landsbankans. Vísir/Vilhelm
Landsbankinn hefur fækkað starfsmönnum í höfuðstöðvum bankans í Austurstræti um 30 auk þess sem ráðningarsamningum allra sem starfa í afgreiðslu bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið sagt upp. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi bankans, segir í samtali við Vísi að uppsagnirnar í höfuðstöðvunum nái til flestra sviða. „Þetta er mjög dreift. Í fyrirtækja- og einstaklingsþjónustu, áhættustýringu og bakvinnslu,“ segir Kristján. Aukin áhersla á rafræna afgreiðslu erinda leiði til fækkunar og hagræðingar í bakvinnslu og hjá stoðsviðum. Engar uppsagnir séu í útibúunum sjálfum. Ástæða uppsagna í Leifsstöð er sú að bankinn er aðeins með samning þar til 30. júní. Til hafi staðið að halda útboð síðastliðið haust vegna bankastarfsemi í flugstöðinni en ekki hafi tekist að klára það. Samningur við bankann hafi verið framlengdur til sumarsins. Um varúðarráðstöfun sé að ræða. Kristján segir að Landsbankinn muni að sjálfsögðu taka þátt í útboðinu hvenær sem það muni fara fram. Bankinn hafi verið með rekstur í flugstöðinni frá upphafi. „Við munum reyna að gera áframhaldandi samning,“ segir Kristján. Takist samningar og bankinn haldi áfram að sinna fjármálaþjónustu í flugstöðinni verði uppsagnir starfsmanna afturkallaðar.Fréttatilkynning Landsbankans í heild sinni Áframhaldandi hagræðing í Landsbankanum Landsbankinn vinnur áfram að hagræðingu og breytingum á sínum rekstri. Af þeim sökum fækkar um 30 manns í höfuðstöðvum bankans og að auki hefur ráðningasamningum fastráðinna starfsmanna í afgreiðslu bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verið sagt upp, en þar starfa 13 manns. Uppsögnin í Leifsstöð verður afturkölluð, haldi bankinn áfram að sinna fjármálaþjónustu í flugstöðinni eins og verið hefur. Uppsagnirnar í höfuðstöðvum bankans ná til flestra sviða. Úrvinnsla ýmissa mála er tengjast hruninu er nánast lokið og m.a. þess vegna verða gerðar ákveðnar breytingar á skipulagi og mönnun bankans. Aukin áhersla á rafræna afgreiðslu erinda leiðir til fækkunar og hagræðingar í bakvinnslu og hjá stoðsviðum. Ákvörðun um uppsögn starfsfólks í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er varúðarráðstöfun af hálfu Landsbankans vegna óvissu um framhald starfseminnar þar. Þjónustusamningi bankans var sagt upp á síðasta ári og tilkynnt að fjármálaþjónusta yrði boðin út og átti það að gerast á síðastliðnu hausti. Af því varð ekki og í lok árs var gerður viðauki við þjónustusamning Landsbankans sem fól í sér að afgreiðsla bankans yrði opin til 30. júní 2015. Óvissa ríkir því um það hver muni sinna fjármálaþjónustu í Leifsstöð eftir það. Landsbankinn hefur rekið afgreiðslu í Leifsstöð allt frá opnun og hyggst taka þátt í útboði Isavia um bankaþjónustu þegar það verður auglýst. Vegna þess fjölda sem um ræðir falla hagræðingaraðgerðirnar undir skilgreiningu hópuppsagna og hefur viðkomandi yfirvöldum verið tilkynnt um þær.
Mest lesið Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Sjá meira