Lífeyrissjóðirnir gætu tapað 80 milljörðum 30. júní 2011 08:45
Lífeyrissjóðirnir gætu tapað 70-80 milljörðum á gjaldmiðlaskiptasamningum ef ýtrustu kröfur skilanefnda verða samþykktar. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að uppgjör gjaldmiðlaskiptasamninga sem lífeyrissjóðirnir gerðu fyrir bankahrun munu að öllum líkindum lenda fyrir dómstólum í haust. Viðræður á milli sjóðanna og skilanefnda gömlu bankanna þriggja hafa staðið yfir í rúmlega tvö og hálft ár en hafa engu skilað og er að mestu lokið. Verði gengið að ýtrustu kröfum skilanefndanna í deilunni myndi það þýða 70-80 milljarða króna hreina tapstöðu fyrir lífeyrissjóði landsins. Ofan á þá tölu myndu síðan bætast dráttarvextir frá uppgjörsdegi samninganna. Íslenskir lífeyrissjóðir tóku stórar stöður með íslensku krónunni á uppgangstímum íslensks viðskiptalífs fyrir bankahrun. Yfirlýstur tilgangur þeirra var að verja sig fyrir tapi á erlendri verðbréfaeign sjóðanna ef krónan styrktist. Krónan hrundi hins vegar við bankahrunið og við það myndaðist gríðarhá tapstaða á þeim framvirku gjaldmiðlaskiptasamningum sem lífeyrissjóðirnir höfðu gert við bankana. Eftir hrun hafa átt sér stað viðræður milli lífeyrissjóðanna og skilanefnda Kaupþings, Glitnis og Landsbankans um hvernig eigi að gera þessa samninga upp. Lífeyrissjóðirnir vilja meina að forsendur hafi brostið fyrir tilvist samninganna í aðdraganda að falli bankanna og við fall þeirra haustið 2008, að því er segir í Viðskiptablaðinu.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira