Caoz segir upp átta starfsmönnum 30. júní 2011 07:00 Teiknimyndin um Þór og hetjur Valhallar verður dýrasta teiknimynd í sögu Íslands. Ekki hefur hins vegar gengið að fjármagna næstu verkefni hjá Caoz. „
Það finnst engum skemmtilegt að afhenda né fá uppsagnarbréf og auðvitað hefðum við viljað halda öllu þessu góða fólki. En því miður náðum við ekki að tryggja fjármögnun að næstu verkefnum og Þór-myndin er að klárast í sumarlok þannig að við urðum að grípa til þessa örþrifaráðs," segir Hilmar Sigurðsson, forstjóri kvikmyndafyrirtækisins Caoz. Átta starfsmönnum var sagt upp hjá fyrirtækinu nýverið. Hilmar segir þetta ekki vera neinn heimsendi en viðurkennir að hann hefði viljað hafa betri verkefnastöðu þegar vinnu við teiknimyndinni Þór lýkur. „Margt af okkar fólki er á verkefnistengdum samningum og það lá alltaf fyrir að þetta yrði raunin ef okkur tækist ekki að tryggja inn fjármagn fyrir næstu myndir," segir Hilmar en teiknimyndin um Þór og hetjur Valhallar verður dýrasta teiknimynd sem íslenskt fyrirtæki hefur ráðist í að gera. Hilmar vill ekki gefa upp hver þessi næstu verkefni eru en upplýsir að það sé ekkert launungarmál að Þór 2 sé inni í myndinni. „Fyrst verðum við auðvitað að klára númer eitt, það liggur í augum uppi."- fgg
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira