Fjárfest fyrir sex milljarða í sprotafyrirtækjum Sæunn Gísladóttir skrifar 9. janúar 2016 06:00 Stærsta fjárfestingin var fjögurra milljarða fjárfesting leidd af framtakssjóðnum NEA í tölvuleikjaframleiðandanum CCP. mynd/CCP
Á síðasta ársfjórðungi árið 2015 var fjárfest í íslenskum sprotafyrirtækjum fyrir sem nemur sex milljörðum króna. Þetta kemur fram í samantekt fréttavefsins Norðurskautsins. Níu fjárfestingar voru á fjórðungnum. Stærsta fjárfestingin var fjögurra milljarða fjárfesting leidd af framtakssjóðnum NEA í tölvuleikjaframleiðandanum CCP. Meðalfjárfesting í sprotafyrirtæki sem fjármagnaði sig í fyrsta sinn nam 175 milljónum en meðalfjárfesting í lengra komnum fyrirtækjum nam 253 milljónum króna. Á eftir CCP var stærsta fjárfestingin í Arctic Trucks, svo ARK Technology og Sólfari. Flestar fjárfestingar voru í gegnum íslenska sjóði, hins vegar kom stærsti hluti fjárhæðarinnar, eða um 80 prósent, frá útlöndum sökum fjárfestingar NEA. Fram kemur í fjárfestingunni að íslensku sjóðirnir Brunnur, Frumtak 2, Eyrir Sprotar og Nýsköpunarsjóður voru virkir á ársfjórðungnum. Fréttablaðið greindi frá því á síðasta ári að árið 2015 voru þrír nýir vaxtarsjóðir stofnaðir, Eyrir Sprotar, Frumtak 2 og Brunnur. Heildarfjárfestingargeta þeirra nemur 11 milljörðum. Nýsköpunarfyrirtækjum stendur því til boða mun meira fjármagn hérlendis en var fyrir fáeinum misserum. Nú þegar hefur Eyrir fjárfest í átta fyrirtækjum, Frumtak í fjórum fyrir milljarð, og Brunnur er byrjaður að fjárfesta. Til stendur að fjölga fjárfestingum sjóðanna á nýju ári.
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira