Nýtt hótel opnar á Akureyri 29. júní 2011 15:50
Í dag opna Icelandair hótel formlega nýtt hótel á Akureyri: Icelandair hótel Akureyri. Félagið hefur gert leigusamning til næstu 20 ára um rekstur heilsárshótels í húsinu að Þingvallastræti 23, en þetta sögufræga hús, sem áður hýsti m.a. Iðnskóla Akureyrar, hefur nú í vetur verið stækkað og sniðið að þörfum hótelreksturs. Þingvangur ehf er eigandi að fasteigninni ásamt öllum byggingarrétti á lóðinni að því er fram kemur í tilkynningu. „Aðaleigandi Þingvangs ehf er Pálmar Harðarson. Icelandair hótel Akureyri mun bjóða uppá alls 101 herbergi, 63 herbergi voru tilbúin þann 9 júní s.l., en við bætast 38 herbergi í byrjun júní 2012.“ „Auk þeirra herbergja sem tilbúin eru, er jafnframt tekin í notkun veitingasalur og bar, ásamt skjólgóðum garði sem mun nýtast hótelgestum og Akureyringum allan ársins hring,“ segir ennfremur. „Á Icelandair hótel Akureyri er mikil áhersla lögð á góðan aðbúnað fyrir skíðafólk, en upphitaðir skápar og geymslur hafa verið útbúnar í kjallara hússins. Garður hótelsins er einnig all sérstakur, þar sem aðbúnaður gerir ráð fyrir að gestir geti átt þar notalega stund hvort sem er að vetri eða sumri.“ „Við höfum lengi haft augastað á Akureyri sem vænlegri staðsetningu fyrir nýtt hótel í okkar keðju, en jafnframt viljað vanda valið á byggingu og samstarfsaðilum", segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Flugleiðahótela ehf. „Icelandairhótel Akureyri er því kærkomin viðbót í okkar rekstur, og við hlökkum til að leggja okkar að mörkum við að byggja enn frekar upp það góða starf sem átt hefur sér stað í ferðaþjónustu Akureyrarbæjar fram til þessa", segir Magnea að lokum.
Mest lesið Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Viðskipti innlent Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Viðskipti innlent Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Viðskipti innlent Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Atvinnulíf Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Viðskipti innlent Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Viðskipti innlent Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Enn færri komast að í HR en vilja Sigríður Theódóra til Aton Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Sjá meira