Einn nefndarmaður vildi hækka stýrivexti 29. júní 2011 17:05 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. Mynd/Anton Brink
Einn nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans vildi hækka stýrivexti um 0,25 prósent við síðustu vaxtaákvörðun þann 15. júní, en ákveðið var að halda þeim óbreyttum. Sá nefndarmaður lagði meiri áherslu á þá þætti sem benda til meiri verðbólguáhættu en hinir. Flestir voru þeir sammála um að veruleg verðbólguáhætta væri áfram fyrir hendi og hætta á að verðbólga verði þrálátari en búist er við. Í ljósi þess taldi meirihluti nefndarinnar við hæfi að leggja meiri áherslu á aðhald peningastefnunnar í yfirlýsingu nefndarinnar, en við vaxtaákvörðunina fullyrti seðlabankastjóri að líklegra væri að vextirnir myndu hækka en lækka á næstunni. Áfram yrði þó tekið mið af nýlegri þróun og horfur. Í fundargerð peningastefnunefndarinnar kemur fram að launaþrýstingur sem felst í nýgerðum kjarasamningum kunni að benda til aukinnar verðbólguáhættu, einkum með tilliti til veikrar stöðu krónunnar. Hins vegar væri verulegur slaki í þjóðarbúskapnum, auk þess sem peningamagn og útlán hefðu dregist saman, og því væru rök fyrir því að halda vöxtum óbreyttum. Hvort tveggja var talið benda til þess að verðbólguskotið sem nú ríður yfir verði tímabundið, og að verðbólga sígi niður að markmiði þegar áhrif af lágu gengi krónunnar og nýlegum verðhækkunum hrá- og olíuvöru dvína. Hægt er að lesa fundargerð peningastefnunefndarinnar hér http://sedlabanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=8851
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira