Skuldatryggingaálag Íslands hækkar að nýju 2. nóvember 2011 08:54
Skuldatryggingaálag á Ríkissjóð Íslands hefur hækkað nokkuð á síðustu dögum og stendur 300 punktum (3,00%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. Á árinu hefur álagið farið hæst upp í 330 punkta sem var í byrjun október en lægst niður í 200 punkta sem var snemma í júní. Að jafnaði hefur skuldatryggingaálag ríkissjóðs verið 260 punktar á árinu. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandabanka. Þar segir að álagið á Ísland sé jafnframt á ný orðið hærra en álagið á Belgíu sem stóð í 270 punktum í gær. Er skuldatryggingaálagið á Ísland þar með hið sjötta hæsta í samanburði við skuldatryggingaálag annarra ríkja Vestur Evrópu (17 í þessum samanburði). „Vart þarf að nefna að álagið á Grikkland er enn langhæst af ríkjum Vestur Evrópu og þó víðar væri leitað. Næsthæst er álagið á Portúgal sem hefur þó mjakast aðeins niður við að undanförnu, en það var 971 punktar í lok dags í gær. Þar á eftir kemur Írland (697 punktar), Ítalía (446 punktar) og svo Spánn (341 punktar). Álagið er lægst á nágrannalönd okkar Noreg (38 punktar) og svo Svíþjóð (49 punktar)," segir í Morgunkorninu. Við þetta má svo bæta að í dag fór skuldatryggingaálag Íslands í 322 punkta samkvæmt vefsíðunni keldan.is sem fær sínar upplýsingar frá Bloomberg.
Mest lesið Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira