Viðskipti innlent

Harpan aðeins lítið brot af heildarmyndinni fyrir hrunið

Magnús Halldórsson skrifar
Inn á myndinni sést Harpan, lengst til vinstri, en hún er aðeins lítið brot af heildarmyndinni. Lengst til hægri eru framtíðarhöfuðstöðvar Landsbankans teiknaðar, í tveimur byggingum. Hótelbyggingin er við hlið Hörpunnar, við hafnarbakkann. Fyrir framan hótelið og Hörpuna er síðan viðskiptamiðstöð, en sú hugmynd er ekki lengur til umræðu.

Svissneska fjárfestingafélagið World Leisure Investment átti hæsta boð í byggingarétt á reitnum við hlið Hörpunnar, og hyggst reisa þar hótelbyggingu sem verður fimm hæða, auka tveggja hæða bílastæðakjallara niður á við. Samkvæmt samþykktu skipulagi má byggingin vera 30 þúsund fermetrar að stærð, en til samanburðar er Harpan 28 þúsund fermetrar.

Eins og fréttastofa hefur greint frá eru samningaviðræður vegna hótelsins nú á lokastigum og er enn stefnt að uppbygging þess hefjist á upphafsmánuðum næsta árs, og verði fullbúið til notkunar 2015. Fjárfestingin verður í heild upp á tæpa átta millljarða, þ.e. 40 milljónir evra í bygginguna sjálfa, eða um sex milljarða króna, og síðan 1,8 milljarða í byggingaréttinn. Meðal þess sem ekki er enn frágengið er að fá rekstraraðila að hótelinu, en nær fullvíst er að það verði rekið undir merkjum Marriot-hótelkeðjunnar.

Hugmyndir um byggingamagn á svæðinu við Hörpuna voru hástemmdar fyrir hrun, en þær hafa ekki verið lagðar alfarið á hilluna. Landsbankinn hefur enn hug á því að byggja höfuðstöðvar sínar í miðborginni, en í umsögn bankans vegna vinnu við atvinnustefnu Reykjavíkurborgar kom fram að bankinn vildi byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir árið 2015. Bankinn horfir m.a. til sama reits og horft var til fyrir hrunið.

Á meðfylgjandi mynd, sem birtist með umfjöllun í Húsum og Híbýlum í septembermánuði 2008, sést hvernig útlit svæðisins var hugsað, skömmu áður en fjármálakerfið hrundi.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×